fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 18:30

Cara Delevingne, fyrirsæta, er vonandi ekki með verki í hnakkanum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhyggjur þínar geta í bókstaflegri merkingu sest í hnakkann. Verkir í hnakka geta oft tengst andlegu heilbrigði fólks.

Þetta segir Inge Ris, sjúkraþjálfari og doktor í endurhæfingu. Hún segir að flestir telji verki í hnakka tengjast liðum og vöðvum og að þetta sé eitthvað sem sé hægt að æfa sig út úr. „En stærsti þátturinn, sem veldur verkjum í hnakkanum, er stress, þunglyndi og svefnskortur,“ sagði hún.

Í hnakkanum er fjöldi sársaukaskynjara sem eru mjög næmir varðandi stresshormón. Ris segir að það sé beint samband á milli tilfinninga okkar og hugsana og sársaukaskynjaranna.

Hún segir að þekking á tengslum andlegrar heilsu og líkamlegrar sé afgerandi til hægt sé að takast á við vandann. „Í mínum huga er mikilvægt að koma þessum skilaboðum til almennings, að andleg heilsa hafi þýðingu á hvernig okkur líður líkamlega. Þetta snýst því mikið um að reyna að minnka stress og áhyggjur og að maður hugi vel að góðum svefni,“ sagði hún.

Að hennar sögn er besta forvörnin gegn hnakkaverkjum blanda af reglulegri hreyfingu og að setja það í forgang, sem stuðlar að andlegri vellíðan hversdagslega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“