fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Blindur, með heilaskemmdir og deyr líklega fljótlega

Pressan
Föstudaginn 6. mars 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska barnamorðingjanum Ian Huntley er ekki hugað líf eftir að hann var barinn til óbóta í HMP Frankland-fangelsinu í Durham á Englandi fyrir viku síðan.

Huntley afplánar lífstíðardóm sem hann hlaut fyrir morðin á hinum 10 ára gömlu Holly Wells og Jessicu Chapman árið 2002. Var hann dæmdur til að afplána að minnsta kosti 40 ár en að þeim tíma liðnum átti hann að geta sótt um reynslulausn.

Heimildir Daily Mail herma að Huntley sé haldið sofandi í öndunarvél með alvarlega áverka á höfði. Ef hann lifir af – sem þykir ólíklegt – verði hann blindur og heilaskaddaður það sem eftir er.

Breskir fjölmiðlar greina frá því að ráðist hafi verið á Huntley með járnstöng á meðan hann var við vinnu í fangelsinu síðastliðinn föstudag. Maðurinn sem grunaður er um að hafa ráðist á hann heitir Anthony Russell og situr hann inni fyrir þrjú morð.

„Hann hefur ekki sýnt mikil batamerki frá því að hann var fluttur á sjúkrahúsið þrátt fyrir að læknar hafi gert sitt besta,“ segir heimildarmaður Daily Mail. „Þetta virðist bara vera spurning um tíma. Það gætu verið dagar, það gætu verið vikur. Það er líklega fyrir bestu, fáir munu syrgja hann,“ segir heimildarmaðurinn.

Morðin á Holly og Jessicu vöktu gríðarlega athygli á sínum tíma, en Huntley var húsvörður í skóla sem stúlkurnar voru í og lokkaði hann þær inn á heimili sitt þar sem hann myrti þær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin
Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blóðugur uppruni 1. maí

Blóðugur uppruni 1. maí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“