Hann hefur unnið að umfangsmiklum rannsóknum á „ofur-öldungum“, það er fólk yfir áttræðu sem sleppur við króníska sjúkdóma á borð við krabbamein, hjartasjúkdóma og elliglöp. Þessar rannsóknir hans hafa leitt í ljós að þetta fólk er ekki með nein sérstök „ofurgen“.
Topol hefur því beint sjónum sínum að öðrum þætti – lífsstíl.
„Ef ég get lifað 10-15 árum lengur laus við aldurstengda sjúkdóma, þá væri það frábært,“ sagði hann í samtali við CNN.
Hann er auðvitað ekki einn um þessa ósk því margir vilja gjarna lifa lengur lausir við sjúkdóma.
Topol hefur gert róttækar breytingar á eiginn lífsstíl. Svefn er nú forgangsatriði hjá honum. Hann borðar snemma, fer alltaf í rúmið á sama tíma og drekkur mikið (ekki áfengi). Hann forðast að stunda líkamsþjálfun á kvöldin því hann segir að góður svefn veiti bæði hjartanu og minninu góða vernd.
Hreyfing er auðvitað mikilvægur hluti af því að eldast á góðan hátt. Topol stundaði áður bara úthaldsþjálfun en núna hefur hann bætt styrktar- og jafnvægisæfingum við. Hann segir að honum hafi aldrei fundist hann vera í betra formi en hann er 71 árs.
Ráð hans til fólks er einfalt: „Ef þú gerir ekkert og situr bara kyrr, byrjaðu þá að fara í göngutúra, helst röskleg ganga, og bættu jafnt og þétt við,“ sagði hann.
Mataræðið skiptir einnig máli og segist Topol ekki hafa borðað rautt kjöt í rúmlega 40 ár. Hann borðar fisk, belgjurtir og stóran skammt af salati á hverju kvöldi. Hann forðast ofurunnin matvæli en vill ekki nota öfgafulla kúra. Hann nálgast þetta með jafnvægi í huga og lætur mat úr jurtaríkinu vera uppistöðuna í fæðunni og gætir þess að fá nóg prótín miðað við aldur og þyngd.
Hann er efasemdarmaður varðandi fæðubótarefni og sagði: „Ef þú ert heilbrigður, þá eru fæðubótarefni peningasóun.“