Stjórnklefinn skemmdist og flugvélin var ónothæf um tíma. Þetta er aðeins ein af mörgum skýrslum um dularfulla hluti, sem er oft lýst sem drónum, sem fljúga yfir svæði hersins á þessum slóðum. Sérstaklega nærri mexíkósku landamærunum. Þrjú svipuð atvik voru skráð dagana eftir þetta atvik.
Bandaríska flugmálastjórnin segir að frá maí 2023 til júní 2024 hafi 757 tilkynningar borist um óþekkta fljúgandi hluti. Hlutirnir sjást of saman í hópum og fljúga mjög hátt yfir svæðum hersins. Þetta hefur vakið áhyggjur um þjóðaröryggi.
Bandarísk yfirvöld telja að sumir af þessum fljúgandi hlutum geti tengst starfsemi erlendra eiturlyfjahringja sem noti dróna til njósna og til að smygla fíkniefnum með því að notfæra sér tækni sem er erfitt að fylgjast vel.