Í umfjöllun Telegraph frá 2009 um málið kemur fram að frændi og frænka Carr hafi fengið það hlutverk að taka til í skúrnum. Þau voru nokkuð viss um að skúrinn væri fullur af gömlu drasli. Þau höfðu heyrt orðróm um að frændi þeirra hefði safnað gömlum bílum en vissu ekki hvort það væri rétt.
En orðrómurinn reyndist sannur því í skúrnum stóð flaggskip Bugatti bílaframleiðandans, Bugatti Type 57S Atalante.
„Það var orðrómur um að hann ætti Bugatti en enginn var viss um hvort það væri rétt og ef það væri hvort hann væri þá einhvers virði.“
Sagði frændi Carr í samtali við The Mirror.
Af myndinni að dæma virðist bíllinn ekki vera merkilegur en hér var þó um einstakan bíl að ræða. Bugatti hefur framleitt marga klassíska bíla í gegnum tíðina en Type 57S Atalante er einstakur bíll. Aðeins voru framleidd 43 eintök af honum en framleiðslunni var hætt í maí 1937.
Nokkrum árum eftir að bíll Carr fannst í skúrnum seldist hann á uppboði fyrir sem svarar til tæplega 800 milljóna íslenskra króna.