Þær óku heim til hennar um klukkan 21. Danielle beið í bílnum á meðan Toni fór upp á aðra hæð og bankaði hjá Mindy. En útidyrnar voru opnar. Toni gekk varlega inn. Þegar hún kom aðeins lengra inn sá hún fætur Mindy og gekk nær og sá að hún lá lífvana á gólfinu. Hún hafði verið myrt á hrottalegan hátt.
Toni öskraði, svo hátt að einn nágrannanna, Robert Linz, kom hlaupandi.
Þau hringdu í neyðarlínuna og nokkrum mínútum síðar voru bæði lögreglan og sjúkralið komin á vettvang.
Belti var um háls Mindy og hún hafði verið skorin á háls.
Sterk kemísk lykt lá yfir öllu. Hún var af blettahreinsi sem morðinginn hafði hellt yfir Mindy til að eyða sönnunargögnum.
Undir fingurnöglum hennar fundu sérfræðingar lögreglunnar leifar af húð sem voru teknar og sendar í DNA-rannsókn.
Ekkert benti til að rán hefði verið framið, öll verðmæti virtust vera á sínum stað.
Mindy hafði alltaf verið fljót að svara þegar hringt var í hana. Síminn hennar sýndi að hún hafði síðast notað símann klukkan 12.47. Næsta hringing var klukkan 13.30 en henni svaraði hún ekki. Lögreglan sló því föstu að hún hefði verið myrt einhvern tímann á þessum 43 mínútum.
Grunsamlegir nágrannar
Lögreglan ræddi auðvitað við Toni og út frá því sem hún sagði, fékk lögreglan mikinn áhuga á nágrannanum, Robert, sem hafði komið hlaupandi þegar hún öskraði. Ástæðan er að það er ekki óvenjulegt að morðingjar haldi sig nærri morðvettvanginum til að sjá viðbrögðin og umstangið.
Robert var því tekinn til yfirheyrslu. Lögreglumennirnir sáu að hann var með ör á höndunum og vildu að vonum vita hvernig þau voru tilkomin. Robert sagðist vinna með stál í málmverksmiðju og að örin væru afleiðing af starfi hans. Stimpilklukkan á vinnustað hans sýndi að hann var í vinnunni þegar Mindy var myrt og vinnuveitandi hans staðfesti þetta. Lögreglan missti því áhugann á honum.
Moe Gibbs bjó á hæðinni fyrir neðan Mindy. Hann starfaði sem fangavörður. Hann hafði stimplað sig út klukkan 7 að morgni og var því heima þegar Mindy var myrt. Hann sagðist hafa verið að gæta 15 mánaða stjúpdóttur sinnar á meðan konan hans var í vinnunni. Hann sagðist hvorki hafa séð né heyrt eitthvað grunsamlegt.
Lögreglan ræddi við fjölda ættingja, vina og fyrrum unnusta Mindy. Nokkrar lofandi vísbendingar og hugsanlegar ástæður fyrir morðinu komu fram í þessum samtölum en eftir að hafa fylgt þessu öllu eftir var hægt að taka allt þetta fólk af listanum yfir grunaða.
Lögreglan sat nú í raun föst í rannsókn sinni og var því velt upp hvort einhver ókunnugur hefði myrt Mindy.
DNA-niðurstaðan kom á óvart
Síðan kom niðurstaða DNA-rannsóknarinnar á húðsýnunum sem fundust undir fingurnöglum Mindy. Niðurstaðan var keyrð í gegnum gagnagrunn sem gaf strax svörun. Þó ekki með nafn en hins vegar hafði sami maður komið við sögu í óleystu nauðgunarmáli frá 2004.
Lögreglan hafði strax samband við fórnarlambið í því máli sem sagðist ekki hafa séð andlit nauðgarans vel en sagði hann hafa verið stóran, hávaxinn mann af afrískum uppruna. Enginn þeirra sem hafði verið á lista lögreglunnar yfir grunaða passaði við þessa lýsingu.
En lýsingin átti hins vegar mjög vel við nágrannann, hinn 34 ára fangavörð Moe Gibbs.
Lögreglan bað Moe um að láta DNA-sýni í té og hann varð fúslega við þeirri beiðni. Þegar rannsókn á því lauk, lá ljóst fyrir að sýnið var úr sama manni og það sem fannst undir nöglum Mindy og á fórnarlambi nauðgunarinnar 2004.
Niðurstaðan var mikið áfall fyrir lögregluna og ríkissaksóknarann því flestir þekktu Moe sem hafði oft verið viðstaddur réttarhöld. Margir áttu erfitt með að trúa þessu en staðreyndirnar töluðu sínu máli.
Moe var kallaður í yfirheyrslu 20. september. Hann var með sár á höndunum, sár sem gátu verið eftir Mindy þegar hún reyndi að verjast. Hann sagðist hafa fengið sárin nokkrum dögum eftir að Mindy var myrt.
Þegar lögreglan skýrði honum frá niðurstöðum DNA-rannsóknarinnar fór hann að gráta og hlæja og sagðist ekki hafa neina hugmynd um hvernig DNA úr honum gæti hafa endað undir nöglum Mindy.
Þegar honum var sagt að DNA úr honum hefði einnig fundist á fórnarlambinu í fyrrgreindu nauðgunarmáli, sagðist hann aftur vera hissa og skildi ekki hvernig DNA úr honum hefði endað á fórnarlambinu.
En DNA-sönnunargögnin vógu mun þyngra en orð hans og því var hann handtekinn.
Nauðgaði föngum
Daginn eftir að Moe var handtekinn gáfu margar konur, sem voru vistaðar í fangelsi sem hann starfaði í, sig fram við lögregluna og sögðu að hann hefði nauðgað þeim og misnotað kynferðislega um langa hríð.
Síðasta nauðgunin átti sér stað morguninn sem Mindy var myrt.
Þegar fjölmiðlar fengu nafn Moe upplýst fóru þeir að grafast fyrir um fortíð hans. Þá kom í ljós að hann hét áður Glen Dale Morgan Jr. og hafði setið í fangelsi í tæp sex ár fyrir aðild að skotárás í Seattle 1992.
Þegar skýrt var frá þessu játaði lögreglustjórinn, sem sá um rekstur fangelsisins, þar sem Moe starfaði, að ekki hefði verið nægilega vel staðið að rannsókn á ferli hans áður en hann var ráðinn til starfa.
Þegar kom að réttarhöldunum ákvað dómarinn að þau skyldu eingöngu snúast um morðið á Mindy en ekki nauðganirnar.
Í september 2007 var Moe dæmdur í ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn eða náðun. Þetta er þyngsti mögulega refsingin í Norður-Dakóta.
Fjallað er um málið í heimildarmyndinni „How I Caught my Killer“ sem er hægt að sjá á Disney+.