fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Pressan

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að fara í bað á kvöldin en ekki morgnana

Pressan
Laugardaginn 7. júní 2025 20:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgun- eða kvöldbað? Þetta eru ekki allir sammála um og margir deila um þetta af miklum krafti, nánast af eins mikilli alvöru og um hvort það megi setja ananas á pítsu.

Sumir vilja fara í kalda sturtu á morgnana til að mæta frískir í vinnu en aðrir vilja fara hreinir og afslappaðir í háttinn.

En læknirinn Aragona Giuseppe segir að þrátt fyrir að það sé vinsælt að fara í bað á morgnana af því að það „vekur skilningarvitin og gerir þig tilbúin fyrir daginn“ þá fylgi því meiri heilsufarslegur ávinningur að fara í bað á kvöldin.

Giuseppe segir að líkaminn safni drullu og ofnæmisvöldum á sig allan daginn. Á sumrin safni hann á sig svita, mengun og frjókornum sem límist við bæði húð og hár. Ef þú farir upp í rúm án þess að skola þetta af, endi þetta allt á lakinu og koddanum. Það geti síðan valdið húðvandamálum, ertingu í húðinni og ekki síst ofnæmisviðbrögðum.

Giuseppe bendir einnig á að heitt bað að kvöldi hjálpi til við að losa um spennuna í líkamanum og það sé fullkomið ef þú hafi verið í vinnunni, stundað líkamsrækt eða bara átt langan dag. Þetta sé áhrifarík aðferð til að slaka á og undirbúa líkamann undir góðan nætursvefn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þýsk yfirvöld neituðu að rannsaka par sem grunað var um dauða Madeleine McCann

Þýsk yfirvöld neituðu að rannsaka par sem grunað var um dauða Madeleine McCann
Pressan
Í gær

Hlið helvítis er að deyja út

Hlið helvítis er að deyja út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google

Umferðaröngþveiti vegna vandræðalegra mistaka Google
Pressan
Fyrir 2 dögum

Handtekinn og ákærður fyrir morð nokkrum klukkustundum eftir að hann ræddi við fjölmiðla um dularfullt hvarf táningsstúlku

Handtekinn og ákærður fyrir morð nokkrum klukkustundum eftir að hann ræddi við fjölmiðla um dularfullt hvarf táningsstúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Endaði í handjárnum eftir misheppnaðan hrekk – Sjáðu myndbandið

Endaði í handjárnum eftir misheppnaðan hrekk – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri