fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Pressan

Framkvæmdastjóri NATO vekur aftur furðu – Kallaði Trump pabba

Pressan
Miðvikudaginn 25. júní 2025 15:30

Rutte og Trump, sem eru ekki feðgar í raun og veru. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framkvæmdastjóri NATO kallar ekki allt ömmu sína, en hann kallaði þó Donald Trump „pabba“ á leiðtogafundi NATO í dag. Ummælin féllu á blaðamannafundi í Haag og hafa vakið mikla athygli.

Donald Trump Bandaríkjaforseti var mættur á blaðamannafund í dag og var þungt í honum hljóðið eftir að fjölmiðlar fjölluðu um frummat bandarísku leyniþjónustunnar á sprengjuárásum Bandaríkjanna á Íran. Samkvæmt frummatinu báru árásirnar ekki þann árangur sem að var stefnt. Trump er fyrir það fyrsta sármóðgaður að þessu mati hafi verið lekið í fjölmiðla og í öðru lagi er hann ósammála því og er sannfærður um að árásirnar hafi sett strik í kjarnorkuáætlanir Íran til lengri tíma.

Framkvæmdastjóri NATO, Mark Rutte, hefur tekið eftir því að Trump var ekki lukkulegur og því freistaði hann þess að drepa umræðuefninu á dreif. Rutte rifjaði upp að Trump hafi gengið ákveðið til verka í aðgerðunum til Íran og svo komið á vopnahlé. Þegar útlit var fyrir að Íran og Ísrael hafi ætlað að rjúfa vopnahléið hafi Trump svo ekki sparað stóru orðin og sagt löndunum til syndanna svo friðurinn hélst. Rutte komst svo að orði: „Pabbi þarf stundum að taka sterkt til orða“.

Rutte vakti líka athygli í gær fyrir skilaboð sem hann sendi Trump þegar forsetinn var á leiðinni á leiðtogafundinn, en þau voru svo smeðjuleg að það jaðraði við ástarjátningu.

Sjá einnig:Sjáðu vægast sagt smeðjuleg skilaboð sem framkvæmdastjóri NATO sendi Trump í dag – „Kæri Donald. Til hamingju“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum

Varar við því að 50 þúsund bandarískir hermenn verði sendir heim í líkkistum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íran segir að Bandaríkin hafi gengið yfir öll mörk – Prófessor segir að Trump hafi verið ginnkeyptur af Ísrael

Íran segir að Bandaríkin hafi gengið yfir öll mörk – Prófessor segir að Trump hafi verið ginnkeyptur af Ísrael
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fordæma árás Bandaríkjanna – Vanhugsuð og ábyrgðarlaus aðgerð sem brjóti gegn alþjóðalögum

Fordæma árás Bandaríkjanna – Vanhugsuð og ábyrgðarlaus aðgerð sem brjóti gegn alþjóðalögum