fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Pressan

Saka FOX-fréttastofuna um áróður og vara við alvarlegum afleiðingum blandi Bandaríkin sér í átök Ísrael og Írans

Pressan
Fimmtudaginn 19. júní 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hörðustu stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta, MAGA-hreyfingin svokallaða, er klofin í afstöðu sinni til átakanna á milli Ísrael og Íran. Til dæmis er Fox-fréttastofan sjóðheit fyrir því að Bandaríkin taki beinan þátt í átökunum, og þá til að aðstoða Ísrael við að tortíma kjarnorkurannsóknarstöðinni í Fordo í Íran. Rannsóknarstöðin er grafin djúpt í jörðu og er talið að aðeins Bandaríkin eigi rétta vopnið til tortíma henni, sprengju af gerðinni GBU-57. Aðrir harðlínumenn MAGA eru alfarið á móti beinum afskiptum, enda slíkt til þess fallið að flækja Bandaríkin í langvarandi átök á borð við Íraksstríðið.

Fyrrum ráðgjafi Trump, Steve Bannon, sagði í gær að Fox-fréttastofan væri nú komin í hreinan stríðsáróður. Áróðurinn sé nákvæmlega sá sami og var fluttur í aðdraganda Íraksstríðsins og sé á vegum „hefðbundna repúblikanaflokksins“ sem dreymi um annað langvarandi stríð. Þessum armi repúblikana hafi kjósendur þó hafnað með því að velja Trump, en þegar Trump komst til metorða gerði hann það meðal annars með því að gagnrýna Íraksstríðið.

Bannon segir ótækt að Trump láti undan þrýstingi frá forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, sem hafi gerst svo óforskammaður að mæta í viðtal hjá bandaríska fjölmiðlinum ABC og haldið því fram að þetta væri spurning um líf eða dauða Bandaríkjanna.

„Það er óviðeigandi fyrir hvaða erlenda leiðtoga sem er að segja svona við okkur, sérstaklega leiðtogi sem á allt sitt undir Bandaríkjunum“

Bannon segist sannfærður um að Trump láti ekki undan þrýstingi. Þessi átök séu á ábyrgð Ísraels sem geti bara séð um þetta sjálf.

Stríðsmangarar

Fyrrum Fox-fréttamaðurinn Tucker Carlson er á sama máli og Bannon. Hann gagnrýnir fyrrum vinnustað sinn fyrir meinta áróðursherferð. „Það sem þeir eru að gera er það sama og þeir gera alltaf – skrúfa upp áróðurinn á hæsta styrk til að reyna að villa um fyrir eldri áhorfendum Fox.“

Carlson kallar fyrrum kollega sína stríðsmangara sem hvetja til ofbeldis af léttúð. Carlson gengur þó lengra en Bannon og gagnrýnir líka Trump. Forsetinn sé klárlega að vonast til þess að stigmögnum átakanna muni hjálpa honum við að semja við Íran um kjarnorkuþróun þeirra.

Yrði repúblikönum dýrkeypt

Trump hefur eins verið varaður við því að bein afskipti af átökunum geti orðið honum dýrkeypt. Framkvæmdastjóri könnunarfyrirtækisins Big Data Poll, Rich Baris, birti færslu á mánudaginn þar sem hann sagði að nýtt stríð á erlendri grundu væri ekki líklegt til að auka vinsældir forseta heldur gæti þvert á móti steypt honum af stóli. Sérstaklega forseta sem lofaði því í kosningabaráttu sinni að hætta átökum erlendis til að einbeita sér að ógnarástandi innanlands í innflytjendamálum.

„MAGA-hreyfingin var aldrei á móti stríði, bara til að vera á móti stríði. Þetta var afstaða sem byggði á þeim lygum sem ráðandi stéttin notaði til að flækja okkur í tilgangslaus stríð. Að Ísrael hafi þurft að ráðast á Íran að fyrra bragði út af yfirvofandi kjarnavopnaframleiðslu er lygi. Kyssið meirihluta repúblikana bless næsta áratuginn. Ef forsetinn lætur til skarar skríða þá er þetta búið spil fyrir MAGA.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna muna sumir drauma sína betur en aðrir

Þess vegna muna sumir drauma sína betur en aðrir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er mesti stuðdreparinn í svefnherberginu að mati beggja kynja

Þetta er mesti stuðdreparinn í svefnherberginu að mati beggja kynja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna vill hundurinn fylgja þér á klósettið

Þess vegna vill hundurinn fylgja þér á klósettið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta nota píparar til að hreinsa niðurfallið á 30 sekúndum – Þú átt þetta efni í eldhúsinu

Þetta nota píparar til að hreinsa niðurfallið á 30 sekúndum – Þú átt þetta efni í eldhúsinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Paradísareyjan sem enginn vill búa á

Paradísareyjan sem enginn vill búa á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglan leysti morðmál frá 1980 – Saklaus maður sat í fangelsi í 20 ár

Lögreglan leysti morðmál frá 1980 – Saklaus maður sat í fangelsi í 20 ár