Eins og gefur að skilja mætti hann á skrifstofu lottósins til að sækja vinninginn sinn og sat fyrir á mynd með unnustu sinni og móður. Haft var eftir honum í fréttatilkynningu að hann hygðist deila vinningnum með móður sinni því þau kaupi yfirleitt miða saman.
„Þetta verður góður mæðradagur. Ég get borgað skuldir mínar,“ sagði Farthing.
En hugsanlega verður hann að nota hluta af vinningsupphæðinni til að greiða tryggingu fyrir sjálfan sig svo hann losni úr fangelsi.
Ástæðan er að eftir að hann hafði sótt vinninginn lenti hann í deilum við mann á TradeWinds Resort í St Pete Beach í Flórída og er sagður hafa kýlt manninn í andlitið. The Smoking Gun skýrir frá þessu.
Lögreglumaður kom á vettvang og reyndi að skilja mennina að en þá sparkaði Farthing í andlit lögreglumannsins og sást það á upptöku búkmyndavélar lögreglumannsins.
Þegar lögreglumaðurinn skipaði honum að snúa sér við og setja hendur fyrir aftan bak, neitaði Farthing að gera svo og reyndi að hlaupa á brott en náðist og var handtekinn.
Hann var á sakaskrá fyrir og hafði afplánað fangelsisdóm fyrir ótilgreindar sakir.
Hann verður ákærður fyrir líkamsárás gegn lögreglumanni, að hafa streist á móti handtöku og líkamsárás. Hann gat ekki losnað úr fangelsi í síðustu viku þrátt fyrir að trygging upp á 11.500 dollara hafi verið sett fyrir lausn hans. Ástæðan er að hann reyndist eftirlýstur af lögreglunni í Kentucky fyrir að hafa brotið gegn skilorði.