fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Pressan

Hvað hugsar hundurinn þinn þegar þú ferð að heiman?

Pressan
Laugardaginn 26. apríl 2025 18:30

Hvað hugsa þeir? Mynd:Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hefur þú einhvern tímann sagt bless við hundinn þinn og síðan skilið hann eftir einan heima og síðan fengið samviskubit yfir að skilja hann eftir einan?

Flestir hundaeigendur geta eflaust svarað þessu játandi. En hvað á sér stað í höfði hundsins þegar við skiljum hann eftir einan?

Heimurinn án þín? Nei takk! – Í huga hundsins þá er eigandi hans miðpunktur alheimsins. Þegar þú hverfur út um dyrnar án þess að kveðja getur það valdi svolítilli tilvistarkreppu fyrir hundinn. Margir hundar glíma við aðskilnaðarkvíða sem getur valdið óþægilegum tilfinningum hjá þeim. Þeir geta farið að gelta, væla, krafsa í dyrnar eða tæta jafnvel sófann í sig. Þetta getur verið þeirra leið til að segja: „Halló! Hvar ertu?“

Sem betur fer er hægt að gera aðskilnaðinn minna dramatískan og öruggari og betri fyrir ykkur báða.

Það er hægt að þjálfa hundinn í að vera einn. Byrjaðu með að stuttum æfingum þar sem þú ferð til dæmis út með ruslið eða sækir póstinn og skilur hundinn eftir einan. Gerðu þetta eins eðlilega og þú getur og láttu þetta líta út fyrir að vera hversdagslegan hlut.

Það er líka hægt að skilja eitthvað eftir, til dæmis bol eða teppi, með lyktinni þinni. Þetta er eiginlega eins og að láta hundinn hafa hluta af þér á meðan þú ert í burtu.

Sumir hundar bregðast vel við róandi rútínu á borð við að fá smá hundanammi, róandi tónlist eða leikföng sem örva heilann á meðan þú ert ekki heima.

Ef hundurinn þinn þjáist mikið við aðskilnaðinn frá þér, þá getur verið góð hugmynd að fá atferlissérfræðing eða dýralækni til að hjálpa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 2 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu