Margir hafa eflaust prófað hið klassíska húsráð að setja lyftiduft og edik í niðurfallið. Þá byrjar að krauma af krafti en oft endar þetta bara með vonbrigðum því stíflan losnar ekki.
En margir vita ekki að það er til mun betri lausn á þessu og hún virkar miklu betur og er þess utan umhverfisvæn, ódýr og virkar hratt. Lausnina er að finna í eldhússkápnum þínum!
Þetta segir hreingerningargúrúinn Ben Gin, sem er óspar á að deila af þekkingu sinni á Instagram-reikningi sínum. Hann segir að töfralausnin sé ósköp venjulegur matarsódi.
Þetta er ekki grín því matarsódi býr yfir eiginleikum sem leysa upp fitu, matarleifar og drullu á miklu áhrifaríkari hátt en blanda af ediki og lyftidufti. Merkur skýrir frá þessu.
Aðferðin er einföld. Taktu lúkufylli af matarsóda og settu í niðurfallið. Strax á eftir skaltu látu heitt vatn renna í það. Bíddu í um hálfa mínútu og stíflan er vonandi horfin!
Ef hún hverfur ekki við þetta þá er hægt að láta blönduna liggja í niðurfallinu í 30 mínútur og jafnvel í nokkrar klukkustundir. Síðan er bara að skola með heitu vatni.