fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Pressan

Einbúinn lét bílskúr eftir sig þegar hann lést – Fjölskyldan fékk áfall þegar hún opnaði skúrinn

Pressan
Sunnudaginn 8. júní 2025 18:00

Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harold Carr, sem bjó í Newcastle á Englandi, þótti sérlundaður og með aldrinum ágerðist það. Á endanum varð hann einbúi sem umgekkst fáa. Þegar hann lést 89 ára að aldri árið 2007 lét hann ekki mikið eftir sig. Eina eign hans var gamall bílskúr sem féll í hlut fjölskyldunnar sem sá fram á að þurfa að taka til í skúrnum, hann væri ekkert nema fyrirhöfnin. En þegar skúrinn var opnaður brá fjölskyldunni mjög í brún.

Í umfjöllun Telegraph frá 2009 um málið kemur fram að frændi og frænka Carr hafi fengið það hlutverk að taka til í skúrnum. Þau voru nokkuð viss um að skúrinn væri fullur af gömlu drasli. Þau höfðu heyrt orðróm um að frændi þeirra hefði safnað gömlum bílum en vissu ekki hvort það væri rétt.

En orðrómurinn reyndist sannur því í skúrnum stóð flaggskip Bugatti bílaframleiðandans, Bugatti Type 57S Atalante.

„Það var orðrómur um að hann ætti Bugatti en enginn var viss um hvort það væri rétt og ef það væri hvort hann væri þá einhvers virði.“

Sagði frændi Carr í samtali við The Mirror.

Bugatti bíllinn verðmæti. Skjáskot/Youtube

Af myndinni að dæma virðist bíllinn ekki vera merkilegur en hér var þó um einstakan bíl að ræða. Bugatti hefur framleitt marga klassíska bíla í gegnum tíðina en Type 57S Atalante er einstakur bíll. Aðeins voru framleidd 43 eintök af honum en framleiðslunni var hætt í maí 1937.

Nokkrum árum eftir að bíll Carr fannst í skúrnum seldist hann á uppboði fyrir sem svarar til tæplega 800 milljóna íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að fara í bað á kvöldin en ekki morgnana

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að fara í bað á kvöldin en ekki morgnana
Pressan
Í gær

Hvernig gat Warren Jeffs náð ógnvænlegum tökum á söfnuði sínum?

Hvernig gat Warren Jeffs náð ógnvænlegum tökum á söfnuði sínum?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop

Telja sig hafa fundið líkið af Pheobe Bishop
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranar hengdu mann sem var sakaður um njósnir fyrir Ísrael

Íranar hengdu mann sem var sakaður um njósnir fyrir Ísrael