Maðurinn sem er grunaður um að hafa banað hinni ungu Madeleine McCann hefur sent frá sér skuggalegt bréf þar sem hann fullyrðir að hann verði aldrei ákærður nema líkamsleifar stúlkunnar komi í leitirnar.
Þýska lögreglan er nú í kapphlaupi við tímann að gefa út ákæru á hendur þýska barnaníðingnum Christian Brueckner, en hann er sem stendur í fangelsi eftir að hafa nauðgað 72 ára gamalli konu árið 2005 en lýkur brátt afplánun.
Brueckner ræddi við blaðamann á dögunum og gaf þar til kynna að hann ætlaði að láta sig hverfa frá Þýskalandi um leið og hann er laus og fara til lands þar sem ekki verður hægt að fá hann framseldan.
Í vikunni fór fram leit á afmörkuðu svæði í Portúgal, skammt frá staðnum þar sem breska stúlkan dvaldi með fjölskyldu sinni þegar hún hvarf árið 2007.
Nú greina fjölmiðlar frá því að Brueckner hafi skrifað bréf þar sem hlakkar töluvert í honum. Hann segir að lögregla hafi ekki nógu mikið af sönnunargögnum til að gefa út ákæru.
„Þú þarft ekki að vera raunsæismaður eins og ég til að spá fyrir um að ásakanirnar gegn muni ekki halda nokkru vatni og að rannsóknin felld niður.“
Brueckner segir eins í bréfinu að hann viti hvernig þýska réttarkerfið virkar og það muni verða honum til hagsbóta.
„Þið vitið að sjálfsögðu að í Þýskalandi þarftu ekki að sanna sakleysi þitt sem sakborningur heldur þarf ákæruvaldið að sanna að þú sért sannarlega sekur. Minnsti vafi leiðir til sýknu, ef málið fer einu sinni fyrir dómstóla.“
Brueckner hefur í gegnum tíðina þvertekið fyrir að hafa myrt Madeleine. Hann neitaði eins sök í því máli sem hann afplánar nú refsingu fyrir, en hann nauðgaði bandarískum lífeyrisþega í Portúgal árið 2005.
Brueckner rekur í bréfi sínu að það liggi ekki fyrir að ökutæki hans hafi sést á svæðinu þar sem stúlkan hvarf. Ekkert erfðaefni hafi fundist sem tengi hann við stúlkuna.
„Og gleymið ekki þessu – er búið að finna líkið?“