fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Pressan

Líktu vinnufélaga sínum við Svarthöfða – Fær 5,4 milljónir í bætur

Pressan
Laugardaginn 7. júní 2025 10:30

Svarthöfði er eitt helsta illmennið í Stjörnustríðssagnabálkinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fæstir taka því væntanlega sem hrósi að vera líkt við Svarthöfða, Darth Vader, og það átti við í tilfelli bresks heilbrigðisstarfsmanns.

Vinnufélagar konunnar, sem starfaði hjá breska heilbrigðiskerfinu, gengu að mati dómstóls of langt í gríni sínu og nú fær konan, sem hetir Lorna Rooke, sem svarar til 5,4 milljóna króna í bætur vegna málsins.

Þetta kemur fram í opinberum skjölum, og er málið kallað „The Darth Vader Incident“ að sögn M. Fram kemur að dómstóll hafi talið málið svo alvarlegt að hann dæmdi Lornu bætur vegna tilfinningalegs álags og fjárhagstjóns.

Lorna starfaði hjá blóð- og líffæraígræðsludeild á bresku sjúkrahúsi og hafði gert það í 18 ár þegar vinnufélagar hennar fylltu út Stjörnustríðsútgáfu af persónuleikaprófi fyrir hennar hönd, án hennar vitundar. Niðurstaðan var að hún passaði við Svarthöfða.

Vinnufélagarnir sögðu að þetta hafi verið grín hjá þeim.

Í persónuleikaprófinu var Svarthöfða lýst sem „einbeittum manni sem sameinar teymið“. En í raun er hann sá sem flestir í vetrarbrautinni hræðast enda Sith Lord sem er þekktur fyrir að kyrkja fólk með hugaraflinu einu saman og að hafa myrt börn.

En Lornu fannst þetta ekki fyndið, þvert á móti fannst henni sem hún væri lögð í einelti, væri einangruð og niðurlægð. Sérstaklega vegna þess að niðurstöðu persónuleikaprófsins var deilt í sameiginlegum spjallhópi starfsfólksins.

Kathryn Ramsden, dómari, sagði í dómsorði að Svarthöfði sé „ þekkt illmenni“ og því sé ekki undarlegt að þetta hafi komið illa við Lorna. „Það er móðgandi að vera líkt við Svarthöfða og það er skiljanlegt að hún hafi orðið döpur vegna þess,“ segir í dómsorði.

Dómstólinn komst að þeirri niðurstöðu að málið hafi ekki átt beinan hlut að máli varðandi uppsögn hennar og ásökunum hennar um mismunun og óréttmæta uppsögn var vísað frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir

Varð fyrir skelfilegri árás tveggja hunda – Birtir myndir af ótrúlegum breytingum eftir 28 aðgerðir
Pressan
Í gær

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata

Þetta eru hlutirnir sem flugfarþegar gera og flugþjónar hata
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppeldisráð 81 árs DeNiro er einfalt – Börnin á aldrinum tveggja til 57 ára

Uppeldisráð 81 árs DeNiro er einfalt – Börnin á aldrinum tveggja til 57 ára
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“