The Independent skýrir frá þessu og segir að Pedram Madani hafi verið hengdur eftir að hæstiréttur Íran staðfesti dauðadóm yfir honum.
Ríkisfréttastofan IRNA segir að Madani hafi farið til Ísrael þar sem hann hitti útsendara ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad. Hann hafi afhent þeim leynilegar upplýsingar um innviði í Íran þar sem mikilvægur tækjabúnaður sé geymdur.
Segir IRNA að Madani hafi fengið greitt fyrir upplýsingarnar í erlendum gjaldmiðlum og rafmynt.
Hann er einnig sagður hafa hitt útsendara Mossad í ísraelska sendiráðinu í Belgíu.
Madani var handtekinn 2020.