fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Rússar sitja uppi með gamla peningaseðla

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 08:00

Rússar sitja uppi með gamla dollaraseðla.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskir bankar og almenningur sitja uppi með mikið af gömlum bandarískum dollaraseðlum, seðlum sem voru gefnir út fyrir 2009.

Hinn óháði rússneski miðill Meduza skýrir frá þessu og segir að vegna refsiaðgerðanna, sem Vesturlönd beita Rússland, þá sé lítið streymi af erlendum gjaldmiðlum til rússneskra banka.

Miðillinn segir að meira að segja í Rússlandi eigi landsmenn í vaxandi vanda með að nota gamla dollaraseðla.

Margir hafa reynt að nota þessa seðla erlendis, þar á meðal í Tyrklandi, Taílandi, Egyptalandi og Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum, en þar vill enginn taka við þeim.

Artur Muradjan, varaforseti samtaka rússneskra ferðaþjónustufyrirtækja, segir þetta vera „viðkvæmt efni“.

Í samtali við ríkisdagblaðið Rossiyskaya Gazeta sagði hann að áður en Rússar fari í utanlandsferðir þá séu þeim seldir gamlir dollaraseðlar sem enginn vilji taka við erlendis.

Allir rússneskir bankar hafa tekið upp gjöld fyrir að skipta gömlum bandarískum dollaraseðlum og margir stórir bankar eru hættir að taka við þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Palmer fær nýtt númer
Pressan
Í gær

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri

Rússneskir hakkarar stálu gögnum frá lögreglunni og réðust á tölvukerfi NATÓ og fleiri
Pressan
Í gær

Stór salmonellufaraldur af völdum agúrkna

Stór salmonellufaraldur af völdum agúrkna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu

Harry leitaði ráða um hvernig hann gæti breytt ættarnafni sínu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan

Segir að stutt kunni að vera í að Kínverjar ráðist á Taívan