Nú þegar ágústmánuður er senn á enda er Matt orðinn tveggja barna faðir en á sama tíma er hann að undirbúa jarðarför unnustu sinnar. Rachael lést aðeins hálftíma eftir að hafa fætt tvíburana Noah og Abel eftir að vandræði komu upp þegar synir hennar voru teknir með keisaraskurði.
Rachael og Matt voru búsett í bænum Carnforth í Lancashire á Englandi.
Matt ræddi þessa miklu sorg í einlægu viðtali við Mail Online þar sem hann minntist unnustu sinnar með hlýjum orðum.
„Hún var það besta sem gat komið fyrir mig. Við trúlofuðum okkur á föstudeginum og borðuðum saman og ég man að ég sagði við hana: „Trúirðu því að þetta sé lífið okkar? Það getur ekki orðið betra.“
Nokkrum dögum síðar gekkst Rachael undir keisaraskurðinn sem var fyrir fram ákveðinn. „Hún var smá stressuð en mjög sterk og hugrökk þangað til drengirnir komu í heiminn. Hún var mjög hamingjusöm og stolt þegar hún sá þá í fyrsta skipti. Því miður var það í síðasta skipti sem hún sá þá en ég vona að hún komi til með að vaka yfir þeim.“
Blásið hefur verið til söfnunar fyrir Matt á vefnum GoFundMe og hafa yfir 20 þúsund pund, 3,6 milljónir króna safnast. Ekki liggur fyrir hvað fór úrskeiðis í aðgerðinni og segir talsmaður umrædds sjúkrahúss að innri rannsókn fari nú fram.
Í viðtalinu segir Matt að hann muni leggja sig allan fram um að verða drengjunum góður faðir og ala þá þannig upp að móðir þeirra yrði stolt af þeim.