fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Pressan

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur

Pressan
Föstudaginn 16. ágúst 2024 03:46

Maðurinn hellti þvottaefni út á morgunkornið sitt. Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hörmulega slys varð í mars á síðasta ári að Tom McDonald lést eftir að hafa fyrir mistök hellt þvottaefni út á morgunkornið sitt í stað mjólkur.

Þetta kom fram þegar dánardómstjóri fjallað um andlát hans í síðustu viku. Þar kom einnig fram að McDonald greindist með elliglöp fimm árum áður en hann lést. Hann var heima hjá sér þegar hann hellti þvottaefninu út á morgunkornið um miðja nótt. Hann var strax fluttur á sjúkrahús en lést þar.

Dóttir hans bjó hjá honum þegar þetta gerðist og hafði gert í tæp tvö í kjölfar þess að móðir hennar flutti á dvalarheimili. Faðir hennar bjó áfram heima en hann var 92 ára þegar hann lést.

Elliglöp hans versnuðu mikið síðustu fimm mánuði lífs hans að sögn dótturinnar. Hún sagði að hann hafi átt mjög erfitt með að átta sig á hvað klukkan væri og hvort það væri dagur eða nótt. Hún heyrði hann fara á fætur um miðja nótt til að fá sér morgunkorn. Þegar hann skilaði sér ekki aftur upp í rúmið sitt eftir tuttugu mínútur fór hún til að kanna með hann og fann hann á neðri hæðinni. Sagðist hann finna til vanlíðunar eftir að hafa borða eitthvað.

Hún tók síðan eftir því að þvottaefni var í disknum hans. Hún hringdi á sjúkrabíl en eins og áður sagði lést hann á sjúkrahúsinu nokkrum klukkustundum eftir að hann kom þangað að sögn Mirror.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum
Pressan
Í gær

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju
Pressan
Fyrir 2 dögum

Pokémonspilum að verðmæti 400.000 stolið

Pokémonspilum að verðmæti 400.000 stolið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varaforseti Taívan segist ekki láta Kínverja hræða sig þrátt fyrir að þeir hafi ætlað að láta hana lenda í bílslysi

Varaforseti Taívan segist ekki láta Kínverja hræða sig þrátt fyrir að þeir hafi ætlað að láta hana lenda í bílslysi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Grípa til harðra aðgerða gegn skemmtiferðaskipum

Grípa til harðra aðgerða gegn skemmtiferðaskipum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið