fbpx
Mánudagur 20.október 2025
Pressan

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á

Pressan
Mánudaginn 15. apríl 2024 18:33

Mynd: Unsplash

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný skoðanakönnun leiddi í ljós að margir sem stunda ræktina klæðast sveittum nærfötunum allt að sex sinnum aftur áður en þeir þvo fötin.  Þvotta- og heilsusérfræðingar segja að þvo ætti líkamsræktarfötin eftir hverja notkun.

2.000 manns sem stunda ræktina reglulega svöruðu könnuninni að sögn Daily Mail, og sagðist aðeins helmingur þeirra sem nota íþróttabrjóstahaldara þvo hann ​​eftir æfingu.

Fimmti hver sagðist nota ræktarfötin allt að þrisvar sinnum áður en fötin færu í þvott. Og einn af hverjum tíu sagðist klæðast fötunum allt að sex sinnum áður en þau færu í vélina.

Hversu slæmt er þetta? Ef þú þværð ekki íþróttabrjóstahaldara og önnur nærföt sem notuð eru á æfingu strax á eftir gæti þú átt á hættu að fá ertingu í húð og viðbjóðslegar sýkingar, að sögn sérfræðinga. „Ef þú ert að endurnota ræktarfötin þá lykta þau ekki aðeins af svita, heldur eru þau að geyma bakteríur og þess háttar, óhreinindi, fitu og olíur,“ segir Dr Anthony Rossi, prófessor í húðsjúkdómafræði við Memorial Sloan Kettering í New York. York. Segir hann bakteríur elska vatn og hita og því safnast vel í sveittum ræktarfatnaði.

Heitur sviti veldur því að bakteríur, sveppir og ger á húðinni fjölga sér, sem getur komist í hársekkina og valdið hnúðum og bólum. „ Til viðbótar við bakteríurnar sem lifa á húðinni þinni, þá er fulltaf bakteríum í ræktinni sem þú getur komist í snertingu við,“ segir Rossi.

Mynd: Unsplash

Í rannsókn sem gerð var árið 2020 af vísindamönnum við háskólasjúkrahúsið í Cleveland Medical fundust vísbendingar um tvenns konar lyfjaónæmar bakteríur og flensuveiru á 25 prósent af öllum líkamsræktarflötum sem greind voru. Fundu þeir meðal annars bakteríu sem lifað getur í ræktarfatnaði í klukkutíma, daga eða vikur. „Ef MRSA bakterían kemst í skurð eða sár getur þú fengið stór, rauð sár á húðina sem fyllast af vessa, að sögn Dr Mark Fisher, lýtalæknis hjá Johns Hopkins.

„Venjulega er hægt að meðhöndla þessar húðsýkingar, en í mjög sjaldgæfum tilfellum, ef þú leitar ekki hjálpar við ástandinu, er mögulegt fyrir bakteríurnar að komast í blóðrásina sem getur valdið alvarlegum sjúkdómi. Ef þú eyðir tíma í búningsklefum, skólum, líkamsræktarstöðvum eða jafnvel fangelsum, vertu mjög varkár til að forðast skurði og rispur, og ef þú færð húðmeiðsli á þessum stöðum þá skaltu þvo meiðslin vandlega.“

Þrátt fyrir þetta segjast aðeins 46% einstaklinga sem svöruðu könnun breska fyrirtækisins Live Football Tickets hafa áhyggjur af tilvist sýkla þegar þeir hugsuðu hvort þeir ættu að þvo nærfötin eftir ræktina. 55% sögðust bara pæla í lyktinni og nota fötin áfram þar til þau væru farin að lykta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Einhverfur drengur lærði að tala eftir að hann fékk lyf fyrir krabbameinssjúka – Reyndist hafa ýmislegt að segja

Einhverfur drengur lærði að tala eftir að hann fékk lyf fyrir krabbameinssjúka – Reyndist hafa ýmislegt að segja
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reiðilestur uppgjafahermanns vekur athygli – „Ég vissi alltaf að það yrðu fjandans dekurdýrin sem myndu fella þjóð okkar“

Reiðilestur uppgjafahermanns vekur athygli – „Ég vissi alltaf að það yrðu fjandans dekurdýrin sem myndu fella þjóð okkar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögregla búin að gefast upp og hættir leitinni að Gus litla

Lögregla búin að gefast upp og hættir leitinni að Gus litla
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ríkisstjóri vann 170 milljónir í spilavíti í Las Vegas – „Ég var ótrúlega heppinn“

Ríkisstjóri vann 170 milljónir í spilavíti í Las Vegas – „Ég var ótrúlega heppinn“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Mæðgur dóu eftir að hafa borðað afmælistertu – Lögregla vill handtaka manninn sem afhenti tertuna

Mæðgur dóu eftir að hafa borðað afmælistertu – Lögregla vill handtaka manninn sem afhenti tertuna
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tekinn af lífi eftir 20 ár á dauðadeild – Hélt fram sakleysi sínu allt til síðasta dags

Tekinn af lífi eftir 20 ár á dauðadeild – Hélt fram sakleysi sínu allt til síðasta dags