fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Pressan

Sló ótrúlegt hamborgaramet – „Margir héldu að ég myndi vera dáinn núna“

Pressan
Þriðjudaginn 5. mars 2024 07:00

Donald Gorske með Big Mac. Mynd:Heimsmetabók Guinness

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt frá því að hann tók fyrsta bitann var Bandaríkjamaðurinn Donald Gorske heltekinn. „Ég mun örugglega borða Big Mac restina af lífinu,“ sagði hann við sjálfan sig fyrir 52 árum. Það hefur hann gert, því hann hefur borðað Big Mac daglega síðan þá.

Hann er orðinn sjötugur, er á eftirlaunum en hann starfaði sem fangavörður í Fond du Lac í Wisconsin. Hann hefur afrekað það að borða 34.128 Big Mac hamborgara.

Það þarf ekki að koma á óvart að hann er skráður í Heimsmetabók Guinness því enginn  hefur borðað fleiri Big Mac en hann. Eins og flestir vita þá er Big Mac einn frægasti hamborgarinn frá skyndibitakeðjunni McDonald‘s. Hann samanstendur af þrískiptu hamborgarabrauði með tveimur borgurum, salati, lauk, súrum gúrkum og Big Mac sósu.

Allt frá því að Gorske tók fyrsta bitann af Big Mac þann 17. maí 1972 hefur hann borðað allt að níu Big Mac á dag, hvern einasta dag. Ekki nóg með það, því hann hefur geymt hverja einustu kvittun og hvern einasta kassa utan af borgurunum sem hann hefur borðað.

Hann geymir alla kassa utan af hamborgurunum. Mynd:Heimsmetabók Guinness

 

 

 

 

 

 

„Margir héldu að ég myndi vera dáinn núna en þess í stað er ég meðal þeirra heimsmethafa Guinness sem hafa haldið heimsmetinu lengst. Það er nú ansi gott, ef þú spyrð mig,“ sagði hann við Guinness World Records.

Hann gerir sér grein fyrir að það er ekki bein hollusta að borða Big Mac og hefur því reynt að halda sér í formi.

Á fyrstu árunum, eftir að hann kolféll fyrir Big Mac, hafði móðir hans áhyggjur af hvaða áhrif þessi neysla hans á hitaeiningum, sykri, salti og fitu myndi hafa á heilsu hans. Hún fékk hann því til að lofa sér að hann myndi borða að minnsta kosti eina máltíð á dag sem innihéldi ekki Big Mac. En hún gafst upp á þessu 1981  og sagði: „Ef þetta hefur ekki drepið þig enn, þá skaltu bara halda áfram.“

Eins og áður sagði, þá er Gorske meðvitaður um að Big Mac er ekki beint hollasti matur í heimi og getur haft valdið offitu og hjartavandamálum eins og annar skyndibitamatur.  Hann hefur því sett sér ákveðnar reglur um hið daglega líf sitt til að reyna að halda sér heilsuhraustum og hressum.

Hann borðar til dæmis ekki morgunmat og fær sér aldrei franskar kartöflur með hamborgurunum. Auk þess gengur hann 10 km á dag. Að undanförnu hefur hann minnkað neyslu á Big Mac niður í tvo á dag.

Hann var vanur að aka nokkrum sinnum á dag á næsta McDonald‘s stað til að seðja hungrið en frá því að hann fór á eftirlaun hefur hann aðeins farið tvisvar í viku, hann kaupir bara marga í einu og tekur með heim. Hann hitar þá síðan í örbylgjuofni þegar kemur að því að borða þá.

The Guardian segir að Gorske hafi náð heimsmetinu fyrir flesta borðaða Big Mac árið 1999. Þá hafði hann borðað 15.490 borgara. Hann hefur átt fast pláss í Heimsmetabókinni síðan og hefur slegið heimsmetið með hverjum borgara sem hann hefur borðað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar

Ævintýraferðin breyttist í martröð – Hjónin fundust látin í björgunarbát sex vikum síðar
Pressan
Fyrir 6 dögum

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar

Sakamál: Hryllingur í smábæ – Dóttirin stumraði yfir líki móður sinnar
Pressan
Fyrir 1 viku

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár

Einn eftirlýstasti strokufangi Bandaríkjanna sigldi undir fölsku flaggi í 30 ár
Pressan
Fyrir 1 viku

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja

Árásarmaðurinn ætlaði sér ekki að deyja
Pressan
Fyrir 1 viku

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“

Loftslagsbreytingar hafa áhrif á tímann samkvæmt nýrri rannsókn – „Þetta er vitnisburður um alvarleika loftslagsbreytinga“
Pressan
Fyrir 1 viku

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband

Ökumaður Teslubifreiðar lenti í árekstri og missti stjórn á bílnum í kjölfarið – Sjáðu magnað myndband
Pressan
Fyrir 1 viku

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum

600 ára gamall texti líkist vel þekktum texta frá síðari tímum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?

Er leitinni að Plánetu níu að ljúka?