fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Pressan

Flugdólgur gerði allt brjálað – Sjáðu myndbandið

Pressan
Föstudaginn 22. mars 2024 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Farþegi í flugvél American Airlines var snúinn niður og honum vísað úr flugvélinni áður en hún tók á loft frá flugvellinum í Tampa á þriðjudag. Vélin var á leið til Philadelphia og virðist farþeginn hafa verið með allt á hornum sér áður en vélin fór í loftið.

Myndbönd af atvikinu hafa birst á samfélagsmiðlum en maðurinn lét ýmislegt flakka um aðra farþega og starfsfólk vélarinnar. Notaði hann meðal annars orðið „kike“ um einn starfsmann sem er niðrandi orð um gyðinga.

Svona hélt þetta áfram þar til einn farþegi um borð fékk nóg, en svo vildi til að hann er lögreglumaður. Greip hann um háls mannsins og yfirbugaði hann áður en hann var svo leiddur frá borði.

Maðurinn var handtekinn af lögreglu á flugvellinum og kærður fyrir líkamsárás og fyrir að vera undir áhrifum á almannafæri.

Myndbönd af uppákomunni má sjá hér að neðan en á neðsta myndbandinu má sjá þegar maðurinn er yfirbugaður:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum
Pressan
Í gær

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju
Pressan
Fyrir 2 dögum

Pokémonspilum að verðmæti 400.000 stolið

Pokémonspilum að verðmæti 400.000 stolið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varaforseti Taívan segist ekki láta Kínverja hræða sig þrátt fyrir að þeir hafi ætlað að láta hana lenda í bílslysi

Varaforseti Taívan segist ekki láta Kínverja hræða sig þrátt fyrir að þeir hafi ætlað að láta hana lenda í bílslysi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Grípa til harðra aðgerða gegn skemmtiferðaskipum

Grípa til harðra aðgerða gegn skemmtiferðaskipum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi

Sýknaður af ákæru um njósnir rúmri hálfri öld eftir að hann var tekinn af lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið