BBC segir að nú berjist fjölskylda hennar fyrir því að eiginmaðurinn verði fundinn sekur um dauða hennar svo hann fái ekki arfinn eftir hana en hann er upp á sem nemur um 800 milljónum íslenskra króna.
Paula drukknaði í grunnri sundlaug við sumarhúsið. Lesley Anderson, lögmaður fjölskyldu hennar, sagði að sögn BBC að kjarninn í málflutningi fjölskyldunnar sé að Paula hljóti að hafa verið meðvitundarlaus þegar hún lenti í vatninu í lauginni, því annars hefðu eðlileg viðbrögð hennar verið að standa upp til að bjarga sér.
Fjölskyldan hefur höfðað einkamál á hendur Donald og hófst málflutningurinn í síðustu viku.
Í mars 2021 var ákæra á hendur Donald tekinn fyrir hjá dómstóli í Manchester. Hann var ákærður fyrir að hafa orðið Paula, sem var 47 ára, að bana. Donald hefur áður hlotið dóma fyrir að hafa svikið fé út úr konum. Ekki dró það úr grunsemdum lögreglunnar að hann hafði keypt sjö líftryggingar fyrir Paula án þess að segja nokkrum frá því, ekki einu sinni henni. Þess utan var hann stórskuldugur.
„Ástæðan fyrir að drekkja henni var sú elsta og einfaldasta. Hún var fjárhagslegs eðlis,“ sagði David Mclachlan, saksóknari, við réttarhöldin.
Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru nægar sannanir til að sakfella hann fyrir morð en sagði að það væri hins vegar langlíklegast að hann hefði myrt Paula.
Lesley Anderson skýrði frá því fyrir dómi í síðustu viku að Donald, sem er nýsjálenskur, hafi verið sakfelldur í 32 málum í þremur löndum á síðustu 15 árum og að fyrrum eiginkona hans og barn þeirra hafi látist þegar kviknaði í íbúð þeirra.