Aðferðin dugir ekki ein og sér til að lækna HIV en hún bendir til að hugsanlega verði hægt að nota þessa aðferð sem skref í áttina að því að lækna fólk af HIV. Þetta kemur fram í rannsókninni sem var birt fyrr á árinu í vísindaritinu Journal of Infectious Diseases.
Dr. David Margolis, aðalhöfundur rannsóknarinnar og prófessor við læknadeild University of North Carolina, segir að niðurstaðan þýði ekki að sigur hafi náðst í baráttunni við HIV. Ljóst sé að þörf sé á betri verkfærum, betri lyfjum og betri nálgun en þetta bendi til að þessi tækni sé þess virði að meiri vinna verði lögð í hana. Live Science skýrir frá þessu.
Með nútímalegum andretóveirulyfjum geta læknar komið í veg fyrir að HIV breiðist á milli fruma í líkamanum og þannig geta smitaðir lifað eðlilegu lífi. Veirumagnið hjá sumum verður svo lítið að þeir geta ekki smitað aðra af veirunni þegar kynlíf er stundað.
En HIV er retróveira sem þýðir að hún kemur erfðafræðilegum kóða sínum inn í DNA frumna og felur sig þar endalaust. Þar með myndast varabirgðir veiru sem geta valdið fullri sýkingu á hverri stundu.
Til að hægt sé að lækna HIV að fullu verður að vera hægt að reka veirurnar út úr þessum felustöðum sínum og drepa þær.