fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Pressan

Skóglendi á stærð við 10 fótboltavelli glatast á hverri mínútu

Pressan
Laugardaginn 13. apríl 2024 07:30

Eldar í Amazon.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðasta ári hélt skógareyðing áfram af fullum krafti í regnskógum heimsins og var skóglendi á stærð við 10 fótboltavelli eytt á hverri mínútu. Í heildina var 37.000 ferkílómetrum skóglendis eytt í regnskógum heimsins á síðasta ári en það svarar til stærðar Sviss. Jákvæðu fréttirnar eru að mjög dró úr skógareyðingu í brasilíska og kólumbíska hluta Amazonregnskógarins.

The Guardian skýrir frá þessu og segir þetta koma fram í tölum frá the World Resources Institute (WRI) og University of Maryland í Bandaríkjunum.

Aðalástæðan fyrir skógareyðingunni er að landið er tekið undir landbúnað af ýmsu tagi.

Í Brasilíu dróst skógareyðing saman um 39% og í Kólumbíu um 49%. Ástæðan er stefna forseta ríkjanna í umhverfismálum. Á móti kemur að skógareyðing jókst í Bólivíu, Laos, Níkaragva og fleiri ríkjum.

Einnig var mikil skógareyðing í Kanada á síðasta ári en það var af völdum elda en ekki beinnar ásóknar manna í landið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“

Fólk áttar sig ekki á þessu – „Synir okkar eru bræður, frændur og tvíburar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 4 dögum

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“

Nokkurra vikna stúlka á gjörgæslu með kíghósta – „Þetta hefur verið algjör martröð“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið