fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Fjöldahandtökur í brúðkaupi samkynhneigðra

Pressan
Miðvikudaginn 30. ágúst 2023 16:00

Bola Tinubu forseti Nígeríu/Wikimedia. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í fylkinu Delta í Nígeríu handtók meira en 200 manns, síðastliðinn mánudag, í brúðkaupi samkynhneigðra.

Talsmaður lögreglunnar tjáði fjölmiðlum að 67 manns verði sóttir til saka fyrir að skipuleggja og vera viðstödd brúðkaup af slíku tagi.

Sambönd samkynhneigðra eru refsiverð í Nígeríu og allt að 14 ára fangelsisvist liggur við því að vera í sambandi af því tagi.

Talsmaðurinn sagði viðburðinn vera af hinu illa og að Nígería gæti ekki hermt eftir hinum vestræna heimi:

„Við erum Nígería og verðum að fylgja menningu þessa lands.“

Lögregla sýndi fjölmiðlum nokkur af hinum handteknu sem tjáðu fréttamönnum að þau væru ekki samkynhneigð heldur fyrirsætur og fatahönnuðir.

Nígeríu-deild alþjóðlegu mannréttindasamtakanna Amnesty International hefur sagt að um nornaveiðar sé að ræða og kallaði eftir því að hin handteknu yrðu látin laus þegar í stað. Samtökin lögðu áherslu á að spilling grasseraði í nígerísku samfélagi og að lögin sem bönnuðu samkynhneigð sambönd væru í auknum mæli nýtt af lögreglu og almenningi til að áreita og fjárkúga fólk.

Lögreglan sagðist hafa lagt hald á upptöku af brúðkaupinu og ólögleg fíkniefni og lyfseðilsskyld lyf.

Að sögn lögreglunnar fékk hún veður af viðburðinum eftir að lögreglumenn á eftirlitsferð stöðvuðu einstakling sem var boðsgestur í brúðkaupinu. Sagðist viðkomandi fyrst vera leikari.

Samkvæmt lögreglunni játaði umræddur maður við yfirheyrslur að hann væri meðlimur í tilteknum klúbbi fyrir samkynhneigða og að hann væri á leiðinni í brúðkaup samkynheigðs pars.

Það var CNN sem greindi frá.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“