Talsvert hefur verið fjallað um CTE á meðal afreksmanna í íþróttum og á þetta einkum við um íþróttamenn sem stunda til dæmis box, ruðning eða jafnvel knattspyrnu þar sem höfuðið getur verið berskjaldað fyrir höggum. Eru dæmi þess að íþróttamenn verði fyrir heilabilun langt fyrir aldur fram og er tíðni heilabilunar hjá þeim meiri en meðal almennings.
Rannsóknin sem vísindamenn við Boston University gerðu náði til rúmlega 150 einstaklinga sem allir létust fyrir þrítugt og stunduðu íþróttir þar sem höfuðhögg eru algeng. Leiddi rannsóknin í ljós að rúmlega 40% þátttakenda voru með CTE þegar þeir létust.
New York Times ræddi við fjölskyldur fjögurra þessara drengja en allir létust þeir af völdum sjálfsvígs á unglingsárum sínum eða rétt eftir tvítugt og spiluðu amerískan fótbolta á sínum yngri árum.
Drengirnir sem fjallað er um í umfjöllun New York Times hétu Wyatt Bramwell, Meiko Locksley, Hunter Foraker og Josh og George Atkinson III sem voru tvíburar. Hjá þeim öllum fundust vísbendingar um snemmbúna áverkaheilabilun og lýsa aðstandendur þeirra ákveðnum hegðunarbreytingum sem þeir urðu varir við.
Bent er á að einungis sé hægt að greina áverkaheilabilun eftir andlát en einkennin eru oft á tíðum greinileg.
„Hann varð óþekkjanlegur,“ segir faðir Wyatt Bramwell í samtali við Times. „Og því miður þá áttuðum við okkur ekki á því hvað gæti verið að fyrr en það var of seint.“
Bramwell var aðeins 18 ára gamall þegar hann lést. Áður en hann svipti sig lífi tók hann upp myndband af sér þar sem hann lýsti því að hann hefði oft orðið fyrir þungum höfuðhöggum og undir það síðasta hafi hann verið farinn að sjá ofsjónir og djöfulinn sjálfan.
Endaði hann myndbandið á að beina þeim tilmælum til foreldra sinna að láta vísindamenn hafa heilann til rannsóknar eftir andlát sitt.
Einkenni áverkaheilabilunar geta verið margvísleg en oftar en ekki er um að ræða sjálfsvígshugsanir, skert dómgreind, hvatvís hegðun, árásargirni og þunglyndi.
Hægt er að sjá umfjöllun New York Times hér og myndbandið sem Bramwell tók upp áður en hann lést.
—
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.