fbpx
Þriðjudagur 05.desember 2023
Pressan

Verslunarkeðja ætlar að innleiða nýtt „töfra“ afgreiðslukerfi

Ritstjórn DV
Mánudaginn 20. nóvember 2023 20:30

Sjálfsafgreiðslusvæði í verslun Tesco í Póllandi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska matvöruverslanakeðjan Tesco hefur hafið notkun, til reynslu, á nýju sjálfsafgreiðslukerfi. Felst það einkum í því að allar hillur í verslunum fyrirtækisins verða vigtaðar og viðskiptavinir þurfa ekkert að gera nema að setja vörurnar sem þeir vilja kaupa í körfu og poka.

Segist keðjan með útfærslunni vera að breyta sjálfsafgreiðslukössum í svokallaða „töfra kassa“. Með nýja kerfinu er markmiðið að útrýma öllum vandamálum sem varða til dæmis „óvæntan hlut á pokkasvæði“ í sjálfsafgreiðslukössum. Það er viðvörun sem oft kemur upp og eitthvað sem margir breskir sem og íslenskir viðskiptavinir matvöruverslana kannast án efa við.

Eins og áður segir felur kerfið í sér að allar hillur verslana Tesco verða vigtaðar og viðskiptavinir þurfa bara að setja það sem þeir kaupa í körfur og svo við lok verslunarferðar setja það allt í poka. Enn fremur verða settir upp skynjarar og myndavélar sem fylgjast með því hvað viðskiptavinir setja í körfur og poka. Kerfið lætur síðan viðskiptavinum í té lista yfir það sem þeir eru að kaupa. Við sjálfsafgreiðslukassa í viðkomandi verslun renna vipskiptavinir yfir listann til að tryggja að hann passi við það sem þeir eru að kaupa. Sé listinn réttur er síðan lokaskrefið að borga fyrir vörurnar.

Tesco segir nýja kerfið snúast ekki síst um að losna við öll vandamál sem geta fylgt því þegar viðskiptavinir þurfa að skanna vörur inn á sjálfsafgreiðslukössum t.d. með strikamerki eða tilteknar vörur sem erfitt er að skanna. Annað algengt vandamál sé viðvaranir um „óvæntan hlut á pokasvæði“. Allt þetta valdi pirringi hjá viðskiptavinum.

Með nýja kerfinu þurfi viðskiptavinir ekkert að skanna heldur mæti bara á sjálfsafgreiðslukassa, renni yfir vörulistann og borgi að lokum.

Samskonar kerfi hefur verið komið upp í einni verslun samkeppnisaðila Tesco, Hammersmith. Einn viðskiptavinur þeirrar verslunar er mjög ánægður með kerfið. Hann segir að það hafi verið töfrum líkast að nota það í fyrsta sinn því að listi yfir allar vörur sem hann var með í körfunni hafi birst á skjá sjálfafgreiðslukassans án þess að hann þyrfti að gera neitt.

Þetta nýja kerfi hjá Tesco kemur í kjölfar annars afgreiðslukerfis sem innleitt var í hluta verslana fyrirtækisins. Það gengur í meginatriðum út á að við inn- eða útgang skanna viðskiptavinir QR-kóða inn í farsíma sína, fara inn og ná sér í vörur. Verslunin fylgist með kaupunum með aðstoð myndavéla og skynjara og rukkar viðskiptavininn sjálkrafa þegar hann yfirgefur verslunina.

Mirror greindi frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mexíkóar fluttu til Kaliforníu fyrir 5.200 árum

Mexíkóar fluttu til Kaliforníu fyrir 5.200 árum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn vita ekki hvað er í gangi – Dularfullir geislar skella á jörðinni

Vísindamenn vita ekki hvað er í gangi – Dularfullir geislar skella á jörðinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tommy sagðist vera hatrið holdi klætt – „Ég veit ekki hvað ást er“

Tommy sagðist vera hatrið holdi klætt – „Ég veit ekki hvað ást er“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fangelsisdómur fyrir son minn væri eins og dauðadómur

Fangelsisdómur fyrir son minn væri eins og dauðadómur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfreyja segir að fólk eigi alltaf að kasta vatnsflösku undir hótelrúm

Flugfreyja segir að fólk eigi alltaf að kasta vatnsflösku undir hótelrúm
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ætla að rannsaka hugsanlegar aukaverkanir kórónuveirubóluefna á konur

Ætla að rannsaka hugsanlegar aukaverkanir kórónuveirubóluefna á konur