Þetta veit Andreas Wiklöf, sænskur milljarðamæringur, af fenginni reynslu. Á laugardaginn var hann kærður fyrir of hraðan akstur á Álandseyjum. Álandseyjar eru á milli Svíþjóðar og Finnlands, njóta ákveðinnar sjálfsstjórnar en tilheyra Finnlandi.
Expressen segir að Wiklöf hafi ekið eftir vegi þar sem leyfður hámarkshraði er venjulega 70 km/klst. En leyfður hámarkshraði hafði verið lækkaður niður í 50 km/klst.
„Ég var rétt byrjaður að draga úr hraðanum en það gerðist víst ekki nægilega hratt,“ sagði Wiklöf í samtali við staðarmiðilinn Nya Åland.
Þessi 76 ára milljarðamæringur var sektaður fyrir að stofna umferðaröryggi í hættu og sviptur ökuréttindum í 10 daga. Hann þarf einnig að greiða sekt upp á 121.000 evrur en það svarar til um 18,3 milljóna íslenskra króna.
Ástæðan fyrir þessari háu sekt er að í Finnland ræðst sektarupphæðin af skattlögðum tekjum fólks.
Wiklöft ætti að ráða við að greiða sektina en hann er ríkasti maður Álandseyja. Hann hefur meðal annars efnast á að selja tollfrjálsan varning og reka banka.
Hann hefur áður komist í kast við lögin vegna umferðarlagabrota. Til dæmis greiddi hann 14 milljónir í sekt árið 2013 fyrir að aka 27 km yfir leyfðum hámarkshraða.