Kayla Unbehaun hvarf frá heimabæ sínum í Illinois-ríki í Bandaríkjunum árið 2017 þegar hún var tæplega níu ára gömul. Fjallað var um hvarf hennar í sjónvarpsþáttunum Unsolved Mysteries sem aðgengilegir eru á efnisveitunni Netflix. Þátturinn um mál Kayla var sýndur í nóvember 2022.
Talið var full víst að móðir hennar, Heather Unbehaun, hefði numið hana á brott. Fyrst var lýst eftir Kayla í júlí 2017 eftir að hún og móðir hennar mættu ekki til fundar við föður stúlkunnar, Ryan Iserka. Þar með hafði móðirin gerst brotleg við dómsúrskurð um skiptingu forræðis yfir Kayla. Í kjölfarið var gefin út handtökuskipun á hendur Heather sem gilti um öll Bandaríkin.
Í frétt E-Online kemur fram að 13. maí síðastliðinn hafi verslunareigandi í Asheville í Norður-Karólínu ríki þekkt stúlkuna, sem nú er 15 ára gömul, og móður hennar eftir að hafa horft á þáttinn og haft samband við yfirvöld. Kayla var sett í umsjá barnaverndaryfirvalda og móðir hennar handtekin.
Í yfirlýsingu lögreglunnar í South Elgin í Illinois, sem fór með rannsóknina á hvarfi stúlkunnar, þakkaði hún öðrum lögregluembættum fyrir aðstoðina og almennum borgurum um öll Bandaríkin sem veittu ábendingar.
Ryan Iserka sagðist yfir sig ánægður að fá tækifæri til að hitta dóttur sína á ný. Hann þakkaði öllum sem komu að leitinni bæði lögreglu og sjálfboðaliðum og bað að lokum um svigrúm til að hann og Kayla gætu fengið tækifæri til að kynnast upp á nýtt.
Heather Unbehaun var látin laus gegn tryggingu og á að mæta fyrir rétt í júlí.