Lögreglan í Alabama hefur greint frá því að 12 ára stelpa hafi nagað sig úr fjötrum sínum til að komast undan ræningja sínum. Hún fannst gangandi niður götu nálægt Dadeville í Alabama á mánudaginn eftir að hafa verið rænt fyrir viku síðan. Fram kemur að hún hafi verið barin, henni byrlað lyf auk þess sem hún var bundin við rúmgafl á meðan hún var í haldi. Rannsóknin leiddi lögreglumenn að fylgsni mannræningjans þar sem laganna verðir fundu meðal annars rotnandi líkamsleifar. Þá tókst lögreglumönnum að handtaka grunaðan ræningja, samkvæmt WSFA.
Hinn 37 ára Jose Paulino Pascual-Reyes heitir sá sem e í gæsluvarðhaldi í Tallapoosa County Jail. Hann verður ákærður í þremur liðum, tveir þeirra snúa að misnotkun á líki og einum fyrir áðurnefnt ráni á barni. Fleiri ákæruliðir munu eflaust koma í ljós síðar, samkvæmt Alabama News Network. Ekki liggur fyrir hversu lengi líkamsleifarnar hafi verið á heimili Pascual-Reyes eða hverjum þær tilheyra en þær hafa verið sendar til réttarmeinadeildar til krufningar.
Bæjarfógetinn Jimmy Abbett kallaði stúlkuna ungu hetju vegna þess sem hún þurfti að þola.