fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024
Pressan

Borgaði 2,6 milljónir fyrir bók um Harry Potter

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 13. mars 2022 13:30

Bókin dýra. Mynd:Hansons Auctioneers

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú átt gamlar útgáfur af bókunum um Harry Potter þá er ekki útilokað að hægt sé að fá góðan skilding fyrir þær. Að minnsta kosti var notuð Harry Potter bók nýlega seld á sem svarar til um 2,6 milljóna íslenskra króna á uppboði.

Um er að ræða fyrstu útgáfu af bókinni Harry Potter og viskusteinninn en aðeins 500 eintök voru prentuð af þessari útgáfu og því er hún mjög sjaldgæf.

Seljandi bókarinnar fann hana í pappakassa í nytjamarkaði í Manchester og greiddi sem nemur 80 íslenskum krónum fyrir hana.  Hún er ekki í toppstandi og í lýsingu Hansons uppboðshússins var tekið fram að hún væri sjarmerandi slitin með teikningum eftir börn á mörgum síðum.

Ekki var búist við að hátt verð fengist fyrir bókina en það var hart barist um hana og endaði verðið eins og fyrr segir í sem nemur um 2,6 milljónum íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Dauðþreyttir á blindfullum túristum sem æla og míga upp um alla veggi

Dauðþreyttir á blindfullum túristum sem æla og míga upp um alla veggi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þolinmæðin er á þrotum – Áfengisbann til að takast á við of mikinn fjölda ferðamanna

Þolinmæðin er á þrotum – Áfengisbann til að takast á við of mikinn fjölda ferðamanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skyndileg blinda á öðru auganu kom upp um leyndan sjúkdóm

Skyndileg blinda á öðru auganu kom upp um leyndan sjúkdóm
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?

Heit umræða – Hvort þurfa konur eða karlar að sofa lengur?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fimm börn dáin eftir að hafa fengið kíghósta

Fimm börn dáin eftir að hafa fengið kíghósta
Pressan
Fyrir 4 dögum

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið

Umdeilt viðtal við hina raunverulegu Mörthu kallað það siðlausasta fyrr og síðar – Meintur eltihrellir fær að segja sína hlið
Pressan
Fyrir 5 dögum

Segja að kviðdómur hafi átt erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum í gær

Segja að kviðdómur hafi átt erfitt með að halda niðri í sér hlátrinum í gær