fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Parið sem kveikti skógareld með kynjaveislu ákært fyrir manndráp

Heimir Hannesson
Sunnudaginn 25. júlí 2021 20:30

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Par sem stóð að kynjaveislunni í Kaliforníu sem varð til þess að eldur barst í nærliggjandi skóg og breiddist þar út hefur verið ákært fyrir manndráp af gáleysi, en slökkviliðsmaður lést í eldinum. Parið neitar sök í málinu.

Eldurinn braust út 5. september síðastliðinn þegar reykvél sem parið hafði komið fyrir með lituðum reyk kveikti í þurru grasi sem hún stóð á. Parið reyndi að slökkva í eldinum með vatnsflöskum, en hafði ekki erindi sem erfiði.

The Hill greindi frá málinu í vikunni.

12 dögum síðar hafði eldurinn breitt út sér yfir stórt svæði þegar slökkviliðsmaðurinn Charles Morton vann með félögum sínum að því að fella tré og rjúfa gróðurinn til þess að hefta útbreiðslu skógareldsins. Í lýsingu The Hill segir að eldurinn hafi breiðst hraðar út en þeir gerðu ráð fyrir og að Morton hafi ekki náð að koma sér undan logunum.

Slökkviliðsmenn náðu loks tökum á eldinum í nóvember, en þá höfðu 90 ferkílómetrar brunnið. 13 slösuðust og fimm heimili eyðilögðust í brunanum.

Parið er ákært fyrir manndráp af gáleysi, brennu, skemmdarverk og fyrir að hafa valdið líkamsáverkum með íkveikju. Málið verður tekið fyrir af dómstólum ytra 15. september næstkomandi.

Málið er ekki það fyrsta af þessum toga, en árið 2017 setti blálituð sprengja í kynjaveislu af stað skógareld sem kveikti í 190 ferkílómetra af skóglendi. CNN birti myndband af sprengjunni á heimasíðu sinni árið 2018, sem sjá má hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn