fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Pressan

Óhugguleg ráðgáta hrellir strandfara í Bretlandi

Bjarki Sigurðsson
Sunnudaginn 4. apríl 2021 19:30

Strönd í Cornwall-sýslu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Cornwall-sýslu á suðvesturhorni Bretlands eru fallegar strendur sem laða til sín fjölda ferðamanna ár hvert. Það sem hefur fundist á ströndum sýslunnar seinustu daga hefur þó skilið íbúa eftir undrandi.

Á tveimur ströndum hefur undanfarið skolað á land dauðum selum sem hausinn hefur verið skorinn af. Einnig er búið að skera hreifana af sumum dýranna. Svipaðar sögur hafa borist frá löndum á borð við Frakkland og Írland.

Þó ekki sé staðfest hvernig dýrin drápust er sagt að það sé ekki óvenjulegt að hauslausum selum skoli á land en hræin gætu hafa velkst um í sjónum í marga daga áður en þau ber að landi. Þá er höfuð sela mjög þungt og hálsinn mjög viðkvæmur þannig að selirnir gætu hafa drepist af náttúrulegum aðstæðum og hausinn fallið af eftir á.

Það sem vekur þó mestan óhug er að hreifar selanna eru einnig horfnir en þeir ættu ekki að geta fallið af án aðstoðar. Þá eru rándýr ekki talin  líkleg að éta einungis hreifa dýrsins og því mögulegt að ástand selanna sé af mannavöldum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 2 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu