fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Það vantar 40.000 hjúkrunarfræðinga á Englandi

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 17. október 2021 15:00

Mikið hefur mætt á heilbrigðisstarfsfólki í heimsfaraldrinum. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vantar fólk til starfa við fleira á Bretlandseyjum en að aka flutningabílum og dreifa eldsneyti og matvælum. Sjúkrahúsin glíma við manneklu og bara í Englandi vantar um 40.000 hjúkrunarfræðinga til starfa.

The Guardian skýrir frá þessu. Segir blaðið að nú séu 39.000 stöður hjúkrunarfræðinga í Englandi auglýstar lausar til umsókna.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá er það útganga Breta úr ESB sem veldur því að skortur er á flutningabílstjórum og það sama á við í tilfelli hjúkrunarfræðinga, að minnsta kosti að hluta. Frá því að Bretar greiddu atkvæði um Brexit 2016 hafa rúmlega 10.000 hjúkrunarfræðingar frá ESB-ríkjum horfið á brott frá Bretlandi.

Eins og staðan er núna greiðir heilbrigðiskerfið, NHS, einstökum sjúkrahúsum allt að 7.000 pund fyrir hverja lausa stöðu til að reyna að fá hjúkrunarfræðinga frá útlöndum til starfa, þar á meðal frá Indlandi og Filippseyjum. Féð er meðal annars notað til að greiða fyrir flugmiða og sóttkví við komuna til Bretlands.

Samtök hjúkrunarfræðinga segja að um stórt vandamál sé að ræða. „Það er bara ekki nægilega mikið af starfsfólki til að við getum veitt nauðsynlega umönnun og nú stöndum við uppi með raunverulegan skort á hjúkrunarfræðingum,“ hefur The Guardian eftir Patricia Marquis, formanni stéttarfélags hjúkrunarfræðinga, Royal College of Nursing. „Við hefðum aldrei átt að lenda í þeirri stöðu að vera svo háð útlendum hjúkrunarfræðingum,“ sagði hún einnig.

Lofaði 50.000 hjúkrunarfræðingum

Boris Johnson, forsætisráðherra, er undir miklum þrýstingi vegna afleiðinga Brexit og sérfræðingar vara við að ofan í þann vanda bætist að allt að 60.000 Bretar geti látist í vetur af völdum inflúensu.

Á síðasta ári lofaði Johnson að hjúkrunarfræðingum yrði fjölgað um 50.000 fyrir árið 2025. Hann hefur þó neyðst til að draga í land og játa að tæplega helmingur þeirra verði ekki nýir hjúkrunarfræðingar heldur hjúkrunarfræðingar sem á að halda áfram í vinnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?