fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Danskir blaðamenn fyrir dómi – Hvöttu til innbrots

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 22. maí 2021 14:00

Mynd úr safni. Mynd: EPA-EFE/Henning Bagger DENMARK OUT

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var skuggsýnt þann 10. janúar 2016 þegar tveir menn brutu upp dyr á kjallaraíbúð í Kaupmannahöfn. Á tæpri mínútu tókst þeim að komast inn og stela Arne Jacobsen stól. Þessi atburður hélt sex lögmönnum, saksóknara, dómara og tveimur meðdómendum uppteknum í undirrétti í Kaupmannahöfn nýlega.

Ástæðan er að það voru blaðamenn hjá Ekstra Bladet sem höfðu skipulagt innbrotið eða öllu heldur pantað það. Þeir höfðu leigt íbúðina og komið stólnum, „Egginu“ sem er hannaður af Arne Jacobsen, fyrir í íbúðinni. Honum átti að stela. Þeir pöntuðu innbrotið í lokuðum hóp á Facebook.

Allt var þetta liður í gerð þáttar fyrir TV3 þar sem blaðamennirnir ætluðu að sýna á dramatískan hátt hvernig er hægt að panta innbrot á netinu og kaupa þýfi. Í áætluninni fólst einnig að eftir þjófnaðinn átti að svífa á þjófana með myndavél að vopni og fá viðbrögð þeirra.

Saksóknari telur að blaðamennirnir fimm eigi að fá ráðningu vegna málsins. Þeir voru því ákærðir fyrir skemmdirnar á dyrunum, sem sagt eignaspjöll. Ekstra Bladet er einnig ákært í málinu en saksóknari féll frá ákæru á hendur Nordic Entertainment Gropu TV A/S, sem hét áður TV3.

„Við fyrstu sýn virðist kannski sem mikið sé gert úr skemmdum á einum dyrum. En í augum ákæruvaldsins snýst þetta ekki um verðmæti dyranna heldur um grundvallaratriði. Við getum ekki liðið að afbrot séu framin sem hluti af sjónvarpsþáttagerð,“ sagði Line Steffensen, saksóknari, og bætti við að það væri óréttlátt ef „þeir sem hvöttu til skemmdarverksins væru ekki sóttir til saka“.

Þjófarnir tveir eru einnig ákærðir. Bæði fyrir innbrotið sjálft og þjófnaðinn á stólnum og hótanir í garð blaðamanna þegar þeir svifu á þá með myndavélar. Þeir hótuðu þeim þá lífláti.

Ekki kom fram fyrir dómi hvað kostaði að gera við dyrnar en Ekstra Bladet fékk smið á vettvang til að lagfæra þær. Það er eitt aðalatriðið í málsvörn verjenda blaðamannanna. Þeir bentu einnig á að enginn hafi orðið fyrir tjóni vegna málsins og að blaðamennirnir hafi ekki haft í hyggju að hvetja til eignaspjalla. Þess utan telja þeir að fjölmiðlar hafi rúmt tjáningarfrelsi og nú sé ákæruvaldið að reyna að refsa þeim fyrir rannsóknarblaðamennsku.

Dómur í málinu verður kveðinn upp 1. júní.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?