fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Safnarakort seldist fyrir 650 milljónir

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 30. apríl 2021 15:13

Umrætt safnarakort. Mynd:PWCC Marketplace

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sem svarar til um 650 milljóna íslenskra króna er upphæðin sem ónafngreindur aðili greiddi fyrir sjaldgæft safnarakort með mynd af NBA-stjörnunni LeBron James.

BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að kortið sé frá 2003 en þá var James að taka sín fyrstu skref í NBA-deildinni með Cleveland Cavaliers, hann var þá 18 ára.

Nú leikur hann með Los Angeles Lakers og er talinn vera besti leikmaður deildarinnar og meðal þeirra bestu í sögunni.

BBC segir að aldrei áður hafi safnarakort selst fyrir viðlíka upphæð. Til samanburðar má nefna að í síðasta mánuði seldist kort með mynd af Kobe Bryant á sem svarar til um 250 milljóna íslenskra króna. Það var frá fyrsta tímabili hans í NBA.

Talsmaður PWCC Marketplace, sem er stór sölusíða safnarakorta, segir að verðið á kortinu stýrist af því að aðeins 23 voru gerð á sínum tíma og að eftirspurnin eftir þeim aukist með hverjum degi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“