fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Pólverjar réðust óvart inn í Tékkland

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 17. júní 2020 13:00

Kirkja í Pielgrzymow. Mynd:Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólski herinn hefur viðurkennt að hafa óvart ráðist inn í Tékkland í maí. Talsmenn hersins segja að skammvinnt hernám á hluta landsins hafi einfaldlega verið vegna „misskilnings“.

CNN skýrir frá þessu. Það var seint í maí sem pólskir hermenn fóru yfir landamæri ríkjanna og settu upp vegatálma þar. Þeir byrjuðu síðan að vísa Tékkum, sem ætluðu í kirkju í eigin landi, á brott. Hermennirnir voru við gæslu á landamærum ríkjanna vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Þegar tékknesk yfirvöld fréttu af þessu setti sendiráð Tékka í Varsjá sig strax í samband við pólsk yfirvöld.

„Pólsku nágrannar okkar fullvissuðu okkur um það óopinberlega að þetta hefði gerst vegna mistaka pólska hersins og að enginn fjandskapur hafi legið að baki. Við bíðum þó enn eftir formlegri skýringu.“

Hefur CNN eftir talsmanni tékkneska utanríkisráðuneytisins.

„Staðsetning landamæraeftirlitsins var tilkomin vegna misskilnings, ekki af ásettu ráði. Þetta var leiðrétt samstundis og málið leyst, einnig af hálfu Tékka.“

Sagði í yfirlýsingu frá pólska varnarmálaráðuneytinu til CNN.

„Innrásin“ átti sér stæð nærri Pielgrzymow, sem er lítið landamæraþorp í suðurhluta Póllands. Hinu megin við landamæri er strjálbýlt tékkneskt landsvæði. Fáfarinn vegur tengir löndin saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Ný veira gæti borist úr matnum í augu
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Í gær

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife

Flugvél hrapaði í íbúahverfi á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum

Lýsir skelfilegri hákarlaárás í smáatriðum