fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Sakamál: Enginn skilur hvers vegna hún þurfti að deyja

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 23. maí 2020 20:00

Skyler Neese var aðeins 16 ára þegar hún var myrt

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dauði unglingsstúlkunnar Skylar Neese ratar líklega í flokk sérkennilegustu sakamála seinni ára. Ástæðurnar fyrir morðinu voru óljósar, eða svo fráleitar að erfitt er að viðurkenna þær sem raunverulegar ástæður fyrir kaldrifjuðu morði.

Skylar var 16 ára gömul er hún kvaddi þennan heim árið 2012. Hún bjó í smáborginni Morgantown í Vestur-Virginíu. Faðir hennar, David Neese, vann við vörusamsetningar fyrir Walmart, en móðirin, Mary Neese, var aðstoðarmaður á rannsóknarstofu í hjartasjúkdómum. Skylar var einbirni og að sögn foreldranna var hún bráðgert barn og lærði til dæmis fyrr að lesa og reikna en almennt tíðkast. Henni gekk vel í skóla og var vinsæl meðal jafnaldra sinna.

En á unglingsárunum varð Skylar dálítið óstýrilát. Hún átti til að skrópa í skólanum, reykja gras og drekka bjór. Ekkert sem bakaði foreldrum eða skólayfirvöldum stórfelldar áhyggjur. Námið gekk þrátt fyrir þetta alltaf mjög vel. Sumarið eftir annað ár í framhaldsskóla fékk Skylar vinnu á veitingastaðnum Wendy’s og líkaði það afskaplega vel.

Að kvöldi 5. júlí 2012 kom Skylar heim af kvöldvakt á Wendy’s og fór að sofa – eða svo virtist. Faðir hennar ætlaði að hitta hana heima í hádeginu daginn eftir og var hissa á því að hún væri ekki heima. Glugginn í herbergi Skylar var galopinn. David hringdi í Mary sem sagði að Skylar hefði örugglega bara farið út að hitta vinkonur sínar. Vaktin hennar á Wendy’s ætti að hefjast klukkan 16 og hún myndi áreiðanlega skila sér þangað.

En upp úr klukkan fjögur var hringt frá Wendy’s heim til Skylar og spurt hvort hún myndi mæta til vinnu. Þá fyrst urðu David og Mary óttaslegin og höfðu samband við lögreglu. Fyrsta eftirgrennslan leiddi ekkert í ljós og angist foreldranna óx.

Steig upp í bíl eftir miðnætti

Foreldrar Skylar útbjuggu dreifimiða með mynd af henni og festu upp víðs vegar um borgina. Vinir og vandamenn lögðu lið, gengu hús úr húsi með dreifimiðann og spurðust fyrir um hana, en enginn hafði séð hana.

Æskuvinkona Skylar, Shelia Eddy, var meðal þeirra sem hjálpuðu til og gerði sitt besta til að hughreysta foreldrana. En nokkrum dögum eftir hvarf Skylar játaði hún dálítið fyrir föður Skylar: Hún sagði að Skylar hefði stolist út með sér og Rachel Shoaf, annarri vinkonu, og þær farið í bíltúr. Þetta var eftir klukkan tíu, það er eftir leyfilegan útivistartíma 16 ára unglinga á svæðinu.

Skömmu síðar komu niðurstöður úr athugun á myndaeftirlitskerfi í götunni. Þar fannst nokkuð afar athyglisvert: Klukkan hálf eitt var kornótt myndskeið af Skylar að troðast út um gluggann á herberginu sínu, hoppa niður á jörð, ganga niður eftir götunni og setjast upp í bíl við enda hennar. Hvorki var hægt að sjá bílnúmerið á óskýru myndskeiðinu, né bíltegundina.

Ljóst var að Skylar hafði farið sjálfviljug upp í bílinn. Það vakti grunsemdir um að hún hefði einfaldlega strokið að heiman, skýring sem foreldrar hennar gátu engan veginn kyngt enda hafði allt leikið í lyndi á heimilinu, að þeirra mati.

Skylar hafði hins vegar skilið símann sinn eftir og nokkrum dögum eftir hvarfið var enn engin hreyfing á bankareikningum hennar. Þetta vitnaði sterkt gegn því að hún hefði strokið að heiman og hennar nánustu voru orðnir sannfærðir um að eitthvað hræðilegt hefði gerst.

Ekkert nýtt kom hins vegar fram í málinu fyrr en í mars árið 2013, heilum átta mánuðum eftir hvarf Skylar. En þá leystist málið á skömmum tíma.

Skömmu eftir hvarf Skyler birti Shelia myndasyrpu af sér og Skyler á Twitter

Morðið undirbúið í marga mánuði

Í marsmánuði árið 2013 hringdi Shelia Eddy grátandi í lögregluna í Morgantown og játaði á sig morðið á Skylar Neese. Samkvæmt hennar framburði hafði þriðja vinkonan, Rachel Shoaf, tekið fullan þátt í glæpnum.

Sagan var ótrúleg en ýmis gögn áttu eftir að styðja hana og hún reyndist vera sannleikurinn. Þær Skylar, Shelia og Rachel voru miklar vinkonur sem sífellt voru að bralla eitthvað saman. Shelia og Rachel voru þó taldar ganga dálítið lengra í uppátækjunum og stundum slettist upp á vinskapinn við Skylar.

Þetta kvöld keyrðu stelpurnar Skylar fyrst heim, eftir að þeim hafði orðið sundurorða við hana. En eftir miðnætti sendu þær henni skilaboð og buðu henni að koma á rúntinn. Skylar þáði boðið. Bílinn sem sást fremur ógreinilega í myndaeftirlitsupptökunni hafði Shelia til umráða þetta kvöld.

Stúlkurnar óku með Skylar út úr bænum og stöðvuðu við vegarslóða í um 50 kílómetra fjarlægð frá heimili hennar. Þar dró Rachel, sem sat í aftursætinu, upp hníf og stakk Skylar í bakið. Þær stungu hana aftur og aftur. Skylar sagði bara eitt orð: „Why?“ – Hvers vegna?

Það kom á daginn að stúlkurnar tvær, Rachel og Shelia, höfðu lagt á ráðin um morðið í marga mánuði. Þær heyrðust tala um þetta í skólanum en flestir héldu að þær væru að grínast. Skýringarnar sem þær gáfu á morðinu voru þær að þeim hefði ekki líkað við Skylar.

Rachel og Shelia brugðu á leik á Twitter skömmu eftir atburðinn hræðilega

Þær ætluðu að grafa Skylar en jarðvegurinn þarna var of harður. Þær huldu því líkið með laufblöðum og trjágreinum. Shelia vísaði síðan lögreglu á illa farið lík Skylar rétt eftir játninguna.

Ein skýring sem gefin hefur verið á morðinu er sú að Skylar hafi orðið vitni að því að Rachel og Shelia stunduðu kynlíf saman.

Twitter-færslur eftir allar þrjár, sem fáir lögðu mikla merkingu í þegar þær voru birtar, virðast afar óhugnanlegar í dag. Þar má meðal annars sjá Sheliu og Rachel ræða morðið undir rós og fagna því meira að segja að hafa myrt Skylar. Þar má líka sjá Skylar gefa sterklega í skyn að hún viti leyndarmál vinkvenna sinna.

Shelia var dæmd í 30 ára fangelsi með möguleika á reynslulausn eftir 10 ár. Rachel var dæmd í lífstíðarfangelsi með möguleika á reynslulausn eftir 15 ár. Líklega skipti þarna máli að Shelia játaði fyrr og var samstarfsfúsari við rannsóknina. Við réttarhöldin kváðust stúlkurnar iðrast og báðu ástvini Skylar fyrirgefningar. Þeim skilaboðum var fálega tekið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt