fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Leiðtogi danskra öfgahægrimanna dæmdur í fangelsi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 1. júlí 2020 14:00

Rasmus Paludan, sem er danskur öfgahægrimaður, hefur verið iðinn við að brenna Kóraninn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku var Rasmus Paludan, lögmaður og stofnandi og formaður öfgahægriflokksins Stram Kurs, dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir kynþáttahatur og fleira.

Danska ríkisútvarpið segir að Paludan sé mjög ósáttur við dóminn sem hann segi „valda skaða á trúnni á lýðræði“. Hann segir dóminn algjörlega á skjön við dómvenjur.

Ákæran á hendur Paludan var í fjórtán liðum og sneri að kynþáttahatri, ærumeiðingum og gáleysislegum akstri. Hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, þar af eru tveir mánuðir skilorðsbundnir, og sviptur réttinum til að sinna lögmennsku í tengslum við sakamál næstu þrjú árin.

Hann var meðal annars sakfelldur fyrir að segja að „Danir og Danmörk séu allt of þróuð og fullkomin til að geta þrifist með lágtsettu múslímsku menningarrusli“.

Það var virt honum til refsiþyngingar að upptökur af þessum ummælum og fleiri voru birt á Facebooksíðu Stram Kurs og YouTube-rás flokksins.

Hann var einnig sakfelldur fyrir ærumeiðingar í garð konu af sómölskum ættum í mótmælum á síðasta ári. Hann þarf að greiða henni 30.000 danskar krónur í bætur. Í mótmælunum sagði Paludan hátt og skýrt:

„Þessa múslímsku sómölsku konu, sem stendur þarna,  hef ég margoft séð á Istegade þar sem hún er reiðubúin til að taka á móti viðskiptavinum.“

Fyrir dómi sagði Paludan að hann hefði ekki meint að konan væri vændiskona en Istegade er þekkt vændisgata. Dómurinn tók ekki mark á þeirri skýringu hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar

Liggur þú á evrumynt? – Sumar geta verið mjög verðmætar
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svæsinn eltihrellir handtekinn á Tenerife

Svæsinn eltihrellir handtekinn á Tenerife
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu

Morðmál sem vafðist fyrir lögreglu í 35 ár leystist eftir óvænta játningu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kaþólska kirkjan í Washington rekur særingamann vegna ummæla hans um fljúgandi furðuhluti

Kaþólska kirkjan í Washington rekur særingamann vegna ummæla hans um fljúgandi furðuhluti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf