fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Pressan

Vinsæll bloggari ætlaði að halda upp á afmælið – Þrír létust

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 6. mars 2020 06:00

Yekaterina Didenko. Mynd:Yekaterina Didenko/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að allt sem gat farið úrskeiðis hafi farið úrskeiðis þegar hin vinsæli rússneski bloggari Yekaterina Didenko, 29 ára, hélt upp á afmælið sitt í heilsulind í Moskvu. Þrír létust og sjö enduðu á sjúkrahúsi.

Á föstudaginn birti hún mynd á Instagram, þar sem hún er með 1,6 milljónir fylgjenda, þar sem hún stóð undir gylltum blöðrum sem mynduðu töluna 29. „Eitt af þessum fáum skiptum sem ég held upp á afmælisdaginn minn.“

Skrifaði hún.

Yekaterina Didenko. Mynd:Yekaterina Didenko/Instagram

BBC segir að Didenko hafi boðið vinum og kunningjum í veislu í Devyaty Val heilsulindinni. Í myndbandi, sem hefur verið dreift, frá veislunni sjást veislugestir hella um 25 kg af þurrís út í sundlaug. Allir eru þeir í hlífðargöllum og með hlífðargleraugu og fagna þegar fyrsti veislugesturinn kastar sér út í laugina. Upptökunni lýkur þegar hann hverfur undir vatnsyfirborðið og baðar út öngunum.

Þegar þurrís kemst í snertingu við vatn myndast koltvísýringur í gasformi og kalt og rakt loft. Þetta er ekki hættulegt í litlu magni en í miklu magni getur þetta kæft fólk því þá er ekki nóg súrefni til staðar. Það var einmitt það sem gerðist í veislunni og varð þremur að bana.

Veislugestirnir ætluð að nota þurrísinn til að kæla laugina niður því þeir vildu fara í kalt vatn eftir gufubað.

Didenko er menntaður lyfjafræðingur og skrifar reglulega um lyfjafræði, sparnaðarráð, einkalífið og efnafræðitilraunir sínar. Eiginmaður hennar var meðal þeirra sem létust. Sjö hlutu alvarlega efnabruna og voru lagðir inn á sjúkrahús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Hann hvarf 6 vikum eftir brúðkaupið – 70 árum síðar var sannleikurinn afhjúpaður

Hann hvarf 6 vikum eftir brúðkaupið – 70 árum síðar var sannleikurinn afhjúpaður
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Tölfræðin sýnir að þessar 10 bílategundir endast lengur en 500.000 kílómetra

Tölfræðin sýnir að þessar 10 bílategundir endast lengur en 500.000 kílómetra
Pressan
Í gær

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna
Pressan
Í gær

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Martröð á opnu hafi – Skútan sökk og við tók barátta upp á líf og dauða

Martröð á opnu hafi – Skútan sökk og við tók barátta upp á líf og dauða
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“
Pressan
Fyrir 2 dögum
Geta konur ratað?