fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Pressan

Lögreglan telur hugsanlegt að Anne-Elisabeth Hagen hafi verið myrt heima hjá sér

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 16. september 2019 07:00

Anne-Elisabeth Hagen

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Norska lögreglan hefur fundið gögn sem benda til að Anne-Elisabeth Hagen hafi verið myrt heima hjá sér þann 31. október á síðasta ári og að lík hennar hafi síðan verið fjarlægt af heimilinu af einum eða fleiri gerendum.

VG skýrir frá þessu. Eins og kunnugt er hvarf Anne-Elisabeth frá heimili sínu í útjaðri Osló á dularfullan hátt og hefur ekkert til hennar spurst síðan. Lausnargjalds var krafist fyrir hana en lítið sem ekkert samband hefur verið á milli fjölskyldu Anne-Elisabeth og meintra mannræningja.

VG segir að niðurstaða lögreglunnar byggi á ítarlegum vettvangsrannsóknum á heimili Hagen-hjónanna strax eftir að tilkynnt var um hvarf Anne-Elisabeth. Ummerki fundust um að hún hefði verið dregin eftir baðherbergisgólfinu. Samkvæmt upplýsingum VG er baðherbergið talið vera einn mikilvægasti hluti vettvangsins á heimilinu og að þar hafi verið ráðist á Anne-Elisabeth.

Í húsinu fundust einnig skóför og reynir lögreglan að komast að hver á þá skó sem um ræðir.

Tommy Brøske, sem stýrir rannsókninni, segir að ekki sé hægt að útiloka að Anne-Elisabeth hafi verið myrt heima hjá sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 2 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna

Hún hélt að dóttirin hefði dottið og meitt sig – Síðan fór húðin að rotna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin

Hún borðaði hafragraut daglega í einn mánuð – Þetta voru áhrifin
Pressan
Fyrir 3 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu