En nokkrum klukkustundum síðar er sagan allt önnur. Þá er ekki annað að sjá en fyrsti skóladagurinn hafi verið mjög erfiður. Sokkarnir úr skorðum, skyrtan krumpuð, bindið aflagað og hárgreiðslan algjörlega úr skorðum. Hún virðist þreytt og peysan situr illa sem og skólataskan. BBC skýrir frá þessu.
Jillian fannst myndirnar svo lýsandi fyrir góðan en erfiðan fyrsta skóladag að hún stóðst ekki mátið að birta þær á samfélagsmiðlum. Með þeim skrifaði hún að hún hefði ekki staðist mátið þegar hún sá Lucie koma gangandi heim að taka mynd og spyrja hana hvað þau hefðu gert í skólanum þennan fyrsta dag.
„Ekkert sérstakt.“
Var svarið.