„Viðtakendur eru einstaklingar á öllum aldri; ungar konur og karlar og jafnvel börn,“ segir Øystein Børmer, yfirmaður hjá miðstöð tollsins í Lørenskog í Noregi. Póstsendingar frá útlöndum eiga allar viðkomu í Lørenskog áður en þeim er dreift til viðtakenda í Noregi.
Það er þó eitt sem veldur talsverðum áhyggjum hjá tollyfirvöldum, en það eru póstsendingar sem innihalda fíkniefni, stundum í neyslustærðum en stundum í mun stærri skömmtum. Mörg dæmi eru um að börn, stundum allt niður í 13-14 ára, panti fíkniefni á netinu og fái þau svo send heim til sín.
„Það eru engin aldurstakmörk hjá þeim sem selja þessi lyf á netinu,“ segir Øystein í samtali við norska ríkisútvarpið, NRK, sem fjallaði um málið á dögunum.
Norski tollurinn stöðvaði alls tólf þúsund sendingar á síðasta ári sem innihéldu ólögleg lyf. Þetta er sex prósenta aukning frá árinu 2017. Í frétt NRK segir einnig að tollverðir hafi áhyggjur af þeirri þróun að framleiðendur fíkniefna virðast í auknum mæli farnir að dulbúa lyfin, til dæmis sem sælgæti.
„Þegar foreldrar sjá fyrir sér fíkniefni sjá þeir oftar en ekki hvítt duft, töflur eða eitthvað sem er pakkað inn í álpappír,“ segir Øystein og bætir við að dæmi séu um að sælgæti, til dæmis gúmmíbangsar, hafi innihaldið hættuleg fíkniefni. Þá eru mýmörg dæmi þess að ofskynjunarlyfinu LSD sé komið fyrir á frímerkjum. „Það er stundum erfitt að sjá þetta, sérstaklega fyrir óþjálfað augað,“ segir hann.
Øystein segist hvetja foreldra til að fylgjast með póstsendingum sem börn þeirra fá. Ekki nóg með að það sé ólöglegt og varði við lög að flytja inn fíkniefni þá geti líf ungmenna hreinlega verið í hættu. „Þú hefur ekki hugmynd um hvað er í sendingunni. Þetta getur verið eitthvað allt annað lyf en þú pantaðir eða miklu sterkara lyf en þú taldir,“ segir hann.