Þó að tæp fjögur ár séu liðin frá Ashley Madison-lekanum margfræga er vefurinn enn í fullu fjöri. Notendum fjölgar stöðugt og eru þeir nú 60 milljón talsins. Business Insider fjallaði um þetta og ræddi meðal annars við forsvarsmenn vefjarins og notendur hans.
Ashley Madison-vefurinn var stofnaður árið 2002 fyrir einstaklinga sem eru annað hvort giftir eða í sambandi en í leit að öðrum ævintýrum. Fyrir fjórum árum stálu hakkarar upplýsingum um notendur vefjarins og birtu á netinu eins og frægt er orðið. Þrátt fyrir þetta áfall lögðu forsvarsmenn vefjarins ekki árar í bát.
Í nýrri skýrslu, sem staðfest var af endurskoðunarfyrirtækinu Ernst and Young, kemur fram að notendur séu nú 60 milljón talsins. 14.500 notendur bættust við vefinn að meðaltali á degi hverjum á síðasta ári.
Paul Keable, einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins, segir við Business Insider að tölurnar um fjölda notenda sýni aðeins eitt: Einkvæni sé manneskjunni ekki eðlislægt. Þessu eru eflaust ekki allir sammála enda mýmörg dæmi um einstaklinga sem geta ekki hugsað sér að vera með öðrum en maka sínum.
„Fólk hefur áttað sig á því að hjónaband sé kannski ekki það ævintýri sem það taldi, en skilnaður er kannski eitthvað sem hentar því ekki,“ segir Paul sem bætir við að ýmsar ástæður séu fyrir því, til dæmis fjárhagslegar.