Óhætt er að segja að Chad Mock, sendibílstjóra í Mankato í Minnesota í Bandaríkjunum, hafi brugðið þegar hann sá eitthvað liggja á götunni fyrir framan bifreið hans. Þegar betur var að gáð var um að ræða unga stúlku í bílstól.
Atvikið átti sér stað á mánudag og var Chad á ferð um fjölfarna götu í Mankato. Hann er með öryggismyndavél í bíl sínum og á upptökum úr henni má sjá þegar litla stúlkan dettur úr bifreiðinni í beygju. Þótt ótrúlegt megi virðast tók bílstjórinn, móðir stúlkunnar, ekki eftir þessu og hélt ferð sinni áfram.
Chad stöðvaði bifreið sína og hlúði að stúlkunni sem virtist ekki kippa sér mikið upp við atvikið. „Hún var mjög róleg, öskraði ekki og virtist ekki hafa meitt sig,“ segir Chad við Inside Edition. Hann segir að móðir stúlkunnar hafi komið aftur á staðinn um stundarfjórðungi síðar og verið í miklu uppnámi.
Stúlkan var færð undir læknishendur en sem betur fer slasaðist hún ekkert. Lögregla segir að stúlkan hafi verið rétt fest í bílstólnum en bílstóllinn sjálfur hafi ekki verið festur rétt við sætið. Móðir stúlkunnar á yfir höfði sér sekt vegna málsins.