fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Skotinn til bana á götu úti í Malmö – Hrein aftaka

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 12. desember 2018 09:14

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður á fimmtugsaldri var skotinn til bana í miðborg Malmö í Svíþjóð um klukkan 8.30 að staðartíma í morgun. Morðið líkist einna helst hreinni aftöku.

Maðurinn var skotinn í bakið af stuttu færi þegar hann gekk út úr porti við heimili sitt. Síðan var hann skotinn í höfuðið. Svartklæddur maður með trefil fyrir vitum skaut manninn að sögn sjónarvotta. Hann flúði af vettvangi í svartri Chrysler bifreið.

Fjölmargir urðu vitni að morðinu að sögn Aftonbladet.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt