fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Myrti fjölskyldu sína fyrir frelsi

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 29. mars 2020 14:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árla morguns fimmtudaginn 14. júní, 2007, barst Neyðarlínunni í Bandaríkjunum símtal sem samkvæmt rakningu átti uppruna sinn í byggðarlaginu Channahon í Illinois.

Lögregla var send á staðinn og mætti henni ófögur sjón. Inni í jeppabifreið voru fjögur lík og karlmaður með skotsár á læri. Gert var að sári hans og honum síðan komið á sjúkrahús.

Börnin þrjú
Abigayle, Cassandra og Blake áttu sér einskis ills von.

Borin voru kennsl á þau sem látin voru; Kimberly Ellen Vaughn, 34 ára, og þrjú börn hennar; Abigayle Elizabeth, 12 ára, Cassandra Ellen, 11 ára, og Blake Philip, átta ára. Öll höfðu verið skotin til bana og börnin höfðu verið skotin oftar en einu sinni.

„Fjölskylduharmleikur“

Karlmaðurinn fyrrnefndi var Christopher Vaughn, eiginmaður Kimberly og faðir barnanna. Hann var ekki alvarlega særður, en þó var það ekki hann sem hringdi í Neyðarlínuna, heldur vegfarandi sem átti leið hjá.

Á vettvangi höfðu lögreglumenn fundið skammbyssu en vildu ekki fjölyrða um hvort einhver væri grunaður um ódæðið.

Lögreglustjórinn Carl Dobrich sagðist þó telja að ekki þyrfti að leita langt yfir skammt og bæjarstjórinn í Channahon, Joe Cook, var honum sammála. „Við teljum nokkuð víst að hér sé um fjölskylduharmleik að ræða,“ var haft eftir bæjarstjóranum.

Eiginmaðurinn ekki grunaður

Ekkert var þó fast í hendi og þótt Christopher væri yfirheyrður var hann ekki settur í varðhald eftir að hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu. Á það var enda bent að mögulega hefði Kimberly skotið af skammbyssunni, en yfirvöld vildu ekki, að svo stöddu, opinbera einhverjar vangaveltur um það.

Óstaðfestar fregnir hermdu að Christopher hefði upphaflega sagt að fjölskyldan hefði lent í svokallaðri „drive-by“-skothríð; skotárás úr bifreið sem ekið var framhjá. Hann hefði svo síðar reynt að skella skuldinni á Kimberly.

Það eina sem virtist ljóst í málinu var að Vaughn-fjölskyldan lagði land undir fót snemma þennan fimmtudagsmorgun, að sögn Christophers, til að eiga góðan dag í vatnagarði í Springfield.

Spurningar en fátt um svör

Ekki leið á löngu áður en dró til tíðinda. Við rannsókn á jeppa Vaughn-hjónanna höfðu fundist farsímar og rannsóknarlögreglan velti eðlilega fyrir sér af hverju Christopher hefði ekki hringt sjálfur í Neyðarlínuna.

Auk þess var Christopher skráður fyrir skotvopni, en ekki Kimberly.

Móðirin
Kimberly féll fyrst fyrir hendi Christophers.

Fleiri spurningar vöknuðu sem kröfðust svara og fjölskyldufaðirinn varð sífellt líklegri sem gerandi en fórnarlamb.

Tímabært var að kanna nánar hvaða mann Christopher Vaughn hafði að geyma.

Frelsi í óbyggðum

Eins og gengur og gerist í mörgum viðlíka málum, þá gerðist ekki margt næstu árin, þrátt fyrir að Christopher hefði verið handtekinn og lokaður inni, ákærður fyrir fjögur morð.

Dómur féll í málinu 26. nóvember, 2012, í kjölfar réttarhalds sem tók tæpt ár, en leiddi margt í ljós.

Christopher hafði dreymt um að búa við fullkomið frelsi í óbyggðum Kanada. Hann vildi segja skilið við innihaldslítið úthverfalíf sitt og lifa af landsins gæðum í Yukon í norðvesturhluta Kanada. Því ákvað hann að losa sig við fjölskyldu sína með þeim hætti að hún flæktist ekki fyrir honum með nokkrum hætti í framtíðinni.

Hékk á strippbúllum

Áður en sá draumur átti að rætast vildi Christopher þó njóta lífsins og þess sem ekki var í boði fjarri mannabyggð. Á sama tíma og hann viðaði að sér útivistarútbúnaði af öllum toga, eyddi hann þúsundum Bandaríkjadala á strippbúllum.

Við réttarhaldið báru vitni tvær fyrrverandi nektardansmeyjar sem Christopher hafði ausið fé. Einnig var kallaður til vitnis starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, sem hafði þýtt 140 blaðsíður sem Christopher hafði skrifað á meðan hann beið réttarhalda í fangelsi.

Christopher Vaughn
Fannst hversdagslífið vera prísund.

Textann hafði Christopher skrifað með rúnaletri, en hann hafði víst mikinn áhuga á drúídum og öllu sem þá snerti.

Rúnapár

Ekki fylgir sögunni hvað rúnaskrif Christophers innihéldu nákvæmlega. Ekki minntist hann þó einu orði á eiginkonu sína og börn, en ein nektardansmeyjanna sem höfðu glatt augu hans áður en hann myrti fjölskyldu sína varð þess heiðurs aðnjótandi að fá tilvísun eða tvær í rúnapárinu.

Hvað sem því líður þá kom í ljós að Christopher hafði þrýst hlaupi skammbyssunnar undir höku Kimberly og tekið í gikkinn. Síðan hafði hann beint byssunni að börnum sínum, einu á fætur öðru, og skotið hvert og eitt tveimur skotum, einu í höfuðið og öðru í bringuna. Að minnsta kosti eitt barnanna hafði reynt að bera hönd fyrir sig.

Hafði ekkert að segja

Christopher Vaughn var sakfelldur fyrir morðin á eiginkonu sinni og þremur börnum og fékk fjóra lífstíðardóma sem hann á að afplána hvern á fætur öðrum.

Áður en dómurinn var kveðinn upp var Christopher boðið að ávarpa viðstadda. Svar hans var stutt og laggott: „Nei, þakka þér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 klukkutímum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað ætti forseti að gera?
433
Fyrir 16 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum
433
Fyrir 16 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi