fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Leiðari

Peningana eða lífið

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 31. júlí 2020 13:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiðarinn birtist í helgarblaði DV í dag, 31. júlí.

Það er þung stemning í samfélaginu. Verslunarmannahelginni hefur verið aflýst. Eða svo til. En það er meira undir en ein ferðahelgi, jafnvel þó hún sé almennt stærsta ferðahelgi ársins.

Á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og almannavarna í gær var tilkynnt um hertari aðgerðir vegna kórónaveirunnar; fjöldatakmörk lækkuð niður í 100 manns, tveggja metra reglan aftur gerð að skyldu og enginn fær að koma í almenningsssamgöngur nema með grímu.

Strax á þriðjudag lá í loftinu að hert yrði á aðgerðunum í kjölfar aukningar á tilfellum smits innanlands. Miðvikudagurinn leið síðan án þess að múkk heyrðist um framhaldið. Það var ekki fyrr en rétt fyrir hádegi á fimmtudegi sem tilkynnt var um breytingarnar, þegar fjöldi fólks var þegar búinn að pakka og skipuleggja verslunarmannahelgina í þaula.

Ég er ekki að kvarta út af mínum plönum. Ákvað fyrir viku að halda mig bara heima. Búin að auka sprittnotkunina. Verslunarmannahelgin er ekki stóra málið.

Forsetinn tók af skarið á undan ríkisstjórninni og aflýsti móttöku vegna innsetningar hans í embætti sem halda átti um helgina. „Þessi ágæta móttaka má alveg missa sín – hún skiptir engu máli í hinu stóra samhengi,“ sagði forsetinn. Þetta er líka alveg hárrétt. Rey Cup, Símamótið, N1-mótið og Orkumótið í Eyjum skipta engu máli í stóra samhenginu. Samt voru þessi mót haldin þegar við hefðum átt að halda að okkur höndum – bókstaflega – í kjölfar COVID-19. Opnun landsins skiptir engu máli í stóra samhenginu. Og nú erum við aftur á byrjunarreit.

Síðan síðasta bylgja reið yfir höfum við þó lært ýmislegt, eða komist að ýmsu. Fjöldi fólks sem fékk COVID-19 glímir við eftirköst sjúkdómsins jafnvel mánuðum síðar. Hópur vísindamanna frá University College London hafa sent frá sér skýrslu um tugi sjúklinga sem glímdu við truflanir á heilastarfsemi, heilablæðingar og taugaskaða í kjölfar þess að fá COVID-19. Fjöldi fólks hér á landi hefur farið í endurhæfingu á Reykjalundi, fólk sem þurfti ekki einu sinni að leggjast inn á sjúkrahús eftir að hafa fengið kórónavírusinn. En af hverju voru öll þessi mót haldin í skugga alheimsfaraldursins? Af hverju var landið opnað á ný fyrir ferðamönnum svo fljótt? Fyrir mér er svarið einfalt: Peningar. Hér hafa peningar verið teknir fram yfir heilbrigðissjónarmið. Peningar fram yfir lífið. Sem ætti auðvitað ekki að koma á óvart.

Nú vona ég bara að fólk virði í alvöru tveggja metra regluna, hætti að ryðjast fram fyrir fólk í biðröð bara af því það stóð tvo metra frá afgreiðslukassanum og bíði í eitt augnablik eftir að næsti maður í Bónus taki brauð úr hillunni áður en það klessir sér upp að honum til að taka brauðið við hliðina á.

„Peningana, ellegar ég slæ þig í rot,“ sungu Valgeir Guðjóns og Egill Ólafs um árið. Ætli þeim hafi dottið í hug að hægt væri að óska eftir hvoru tveggja?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?

Veðurspáin fyrir versló er komin: Hvar verður besta veðrið?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“