Svo virðist sem að ástfangin pör séu miklir aðdáendur Disney ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar brúðkaupsvefsins Hitched þar sem teknir voru saman tíu vinsælustu staðirnir til að bera fram bónorð. Farið var yfir 10 þúsund færslur á Instagram þar sem notuð voru myllumerkin #engaged, eða #trúlofuð, og #bridetobe, eða #verðandibrúður.
1. Disneyland, París. 1 af hverjum 500 trúlofunum
2. Disneyland, Flórída. 1 af 555
3. Centennial Lakes garðurinn, Minnesota. 1 af 625
4. Eiffel turninn, París. 1 af 679
5. Hollywood-skiltið, Los Angeles. 1 af 1000
6. Central Park/Brooklyn-brúin, New York borg. 1 af 1.111
7. Niagara-fossarnir, Ontario. 1 af 1.250
8. Epcot garðurinn, Flórída. 1 af 1.428
9. Big Bear-vatn, Kaliforníu. 1 af 1.666
10. Bondi-ströndin, Sydney. 1 af 2.000